Nemandi í viðskiptadeild hlýtur styrk frá efnahags- og viðskiptaráðherra

13.7.2010

Páll Ammendrup Ólafsson, MSc í fjármálafræði hlaut á dögunum styrk frá Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu vegna verkefnisins ,,Áhrif skortsölu á eignaverð, bólur og hrun“ að fjárhæð kr. 300.000.

Við matið var lagt til grundvallar að viðkomandi verkefni fjallaði um einhvern af málaflokkum ráðuneytisins, útkoman gæti nýst ráðuneytinu og að umsóknin væri greinargóð og gæfi til kynna skýr og afmörkuð markmið.  Í auglýsingu var óskað eftir umsækjendum sem lokið hafa fyrstu gráðu háskólanáms.  Tekið var fram að þau verkefni sem tengdust efnahagshruninu myndu hafa forgang við úthlutun. 

Frekari upplýsingar má finna hér: http://www.efnahagsraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3119


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica