Evrópusambandið styrkir rannsókn í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum

2.9.2010

Rannsóknarmiðstöð Háskólans í Reykjavík í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum hlaut nýverið um 730 þúsund evra styrk, jafnvirði um 110 milljónir króna, úr 7. Rammaáætlun Evrópusambandsins. Styrkurinn er veittur til rannsóknar á því hvernig þjónustufyrirtæki geta nýtt upplifun til að skapa sér samkeppnisforskot.

Dr. Marina Candi

Rannsóknin er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Háskólans í Nottingham og þriggja þjónustufyrirtækja. Dr. Marina Candi fræðimaður við HR leiðir þetta þriggja ára verkefni sem byggir á hugmynd sem hún þróaði ásamt dr. Johann Riedel við Háskólann í Nottingham. Rannsóknarsjóðir Evrópusambandsins hafa það meginmarkmið að styðja við rannsóknir vísindamanna í fremstu röð. Aðeins brot þeirra þúsunda umsókna sem berast sjóðunum á hverju ári hlýtur náð fyrir augum dómnefndar og er þetta því mikil viðurkenning fyrir þá sem að koma.

Dr. Friðrik Már Baldursson forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík segir þennan styrk mikla viðurkenningu fyrir Marinu Candi og Rannsóknarmiðstöð HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum. Jafnframt segir hann þessa alþjóðlegu styrkveitingu vitnisburð um það hve rannsóknum hefur fleygt fram í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík á undanförnum árum.

Mörg þekkt fyrirtæki hafa náð góðum árangri með því að gera upplifun að kjarna þess sem þau selja. Disney er gott dæmi um slíkt fyrirtæki, það selur aðgang að skemmtigörðum en viðskiptavinurinn kaupir í raun aðgang að upplifun. Viðfangsefni rannsóknarinnar er minni fyrirtæki sem sem flokkast ekki undir skemmtunar- eða afþreyingariðnaðinn. Rannsakað verður hvort og hvernig slík fyrirtæki geti sviðsett upplifanir og hvaða árangurs þau geta vænst. Þetta verður gert með því að fylgja þremur þjónustufyrirtækjum eftir í þrjú ár. Fyrirtækin verða einskonar tilraunastofur þar sem niðurstöður rannsókna verða prófaðar og aðferðir til að sviðssetja upplifanir verða þróaðar.

Vegna rannsóknarinnar verður á næstu vikum ráðið í stöðu doktorsnema á sviði nýsköpunar við Háskólann í Reykjavík.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica