Aldo Musacchio heldur erindi um fjármálakreppur og skuldakreppur
Aldo Musacchio, dósent við Harvard-háskóla, heldur erindi á vegum viðskiptadeildar HR sem ber yfirskriftina: Fjármálakreppur og skuldakreppur. Hvað getur Ísland lært af reynslu annarra ríkja?
Fyrirlesturinn fer fram föstudaginn 28. maí kl. 12:10 - 13:30 í Betelgás, Nauthólsvík.
Á fundinum hyggst Musacchio fjalla um fjármála- og skuldakreppur í nokkrum nýmarkaðsríkjum á síðustu áratugum. Musacchio ætlar að ræða hvernig lönd á borð við Argentínu og Mexíkó hafa tekist á við skuldakreppur og reynsluna af mismunandi leiðum í þeim efnum. Jafnframt hvaða lærdóm Ísland getur dregið af reynslu þessara landa.
Dr. Aldo Musacchio hefur kennt hjá viðskiptadeild Harvard-háskóla frá árinu 2004 og er nú dósent við deildina. Auk þess gegnir hann rannsóknarstöðu við National Bureau of Economic Research.
Síðustu tíu árin hefur Musacchio stundað rannsóknir á hagsögu Rómönsku Ameríku. Hann hefur m.a. skrifað raundæmi (case study) um kreppuna í Argentínu árið 2001 og um það hvernig endursamið var um skuldir landsins árið 2005. Dr. Musacchio hefur einnig skrifað raundæmi um Mexíkó, Brasilíu, Dubai og Ísland.
Aldo Musacchio er með doktorsgráðu í hagsögu frá Stanford-háskóla og BA-próf í hagfræði frá ITAM í Mexíkóborg. Hann hefur kennt og haldið fyrirlestra við Háskólann í Reykjavík, ITAM í Mexíkóborg, Insper og Universidade de São Paulo í Brasilíu og INALDE í Kólumbíu.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og stendur í um það bil 45 mínútur. Góður tími gefst til spurninga og umræðna að honum loknum.
Allir eru velkomnir!

