Háskólafundur ÍMARK

31.1.2012

ÍMARK og viðskiptadeildir Háskólans í Reykjavík, Háskóla Íslands, Háskólans á Bifröst
og Háskólans á Akureyri munu í samstarfi halda sinn fyrsta Háskólafund ÍMARK í
vikunni. Tilgangur fundarins er að byggja brú á milli atvinnulífs og háskóla,
milli fræða og praktík.

Á háskólafundi ÍMARK verða flutt sex stutt en fjölbreytt erindi af aðilum úr
háskólunum annarsvegar og aðilum úr atvinnulífinu hinsvegar. Hvert erindi tekur
10 mínútur, svokölluð örerindi, þar sem farið er yfir áhugaverð efni er tengjast
markaðsmálum. Hver háskóli leggur til eitt erindi á athyglisverðum
háskólaverkefnum nemenda eða kennara og einnig verða tvö fróðleg erindi úr
atvinnulífinu. Rauði þráðurinn er markaðsmál.

Fyrsti háskólafundur ÍMARK verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, þann
2.febrúar kl.9.00-10.30 í stofu M209.
Frír aðgangur.

Nánari upplýsingar má finna hér: http://imark.is/Forsida/Frettir-og-Frodleikur/Frett/~/NewsID/536




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica