Forsetalisti

Þeir nemendur í grunnnámi sem bestum árangri ná á hverju aðalpróftímabili eiga þess kost að komast á forsetalista viðskiptadeildar og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.

Til þess að nemendur geti verið gjaldgengir á forsetalista þurfa dagskólanemendur  að ljúka að minnsta kosti 30 ECTS einingum á tiltekinni önn og þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum viðkomandi annar samkvæmt námsáætlun (yfirlit náms). Nemendur eiga möguleika á að komast á forsetalista á 1. og 2. ári.

Í útreikningi á meðaleinkunn gilda eingöngu próf sem tekin eru í fyrsta sinn í tilteknu námskeiði, m.ö.o. sjúkrapróf gilda en endurtektarpróf ekki.

Til að nemendur í HMV geti verið gjaldgengir á forsetalista þurfa þeir að ljúka að minnsta kosti 18 ECTS einingum á tiltekinni önn og þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum viðkomandi annar samkvæmt námsáætlun (yfirlit náms). Á þeim önnum sem nemendur taka valnámskeið eru þeir ekki gjaldgengir á forsetalista.

Miðað er við að um 2% nemenda komist á forsetalista hverju sinni.

Forseta-og nýnemalistaathöfn

Mynd tekin á forseta- og nýnemalistaathöfn í janúar 2012

Forsetalista eftir skólaárum má finna hér:


 






 





    



 

Umsagnir nemenda í viðskiptafræði

Umsagnir„Ég valdi viðskiptafræðinám í HR vegna þess að viðskipti snúa að svo miklu meiru en bara að læra kenningar og útreikninga á bók. Með því að fá kennara beint úr atvinnulífinu, gera hagnýt verkefni í samstarfi við fyrirtæki og fá að vinna með og kynnast öðrum viðskiptafræðinemendum náði ég að auka verðmæti námsins til muna."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica