Viðskiptafræði

BSc-nám í viðskiptafræði er fjölbreytt og krefjandi nám sem býr nemendur undir margskonar áskoranir að námi loknu, hvort sem ætlunin er að axla ábyrgð í atvinnulífinu eða halda áfram í frekara námi. Nám til BSc-prófs er 180 ECTS einingar, bæði í dagskólanámi og í háskólanámi með vinnu (HMV). Námið samanstendur af 144 ECTS eininga kjarna, 24 ECTS eininga vali og 12 ECTS eininga BSc-verkefni.

Alþjóðleg viðurkenning

EPAS LogoViðskiptafræðinámið hefur alþjóðlega viðurkenningu (EPAS) sem staðfestir gæði þess. Viðurkenningin er veitt af European Foundation for Management Development (EFMD) en EFMD eru samtök 750 viðskiptaháskóla/-deilda og annarra aðila sem vilja vinna að þróun og umbótum í menntun í viðskiptafræði.  Frekari upplýsingar um viðurkenninguna.

Áhersla á hagnýt verkefni

nyskopun_VDUmfangsmikil hagnýt verkefni eru unnin í lok fyrsta og annars námsárs og gefa þau viðskiptafræðinámi við HR ákveðna sérstöðu. Lokaverkefnið er BSc-verkefni þar sem lögð er áhersla á að prófa og þjálfa faglega hæfni og sjálfstæð vinnubrögð.

Fjölbreyttir valkostir

Á fyrstu tveimur árunum fá nemendur trausta undirstöðu í lykilþáttum viðskipta. Á 3. ári gefst nemendum kostur á að velja námskeið af sérsviðum viðskiptafræðinnar. Stór hluti námskeiða á 3. ári er kenndur á ensku.

Áherslur

Nemendur í tímaNemendur geta valið valnámskeið og unnið BSc verkefni á einu af  áherslusviðum deildarinnar.  Ef nemendur uppfylla ákveðin skilyrði um einingafjölda á því sviði geta þeir útskrifast með áherslu á viðkomandi svið.

Alþjóðleg þekking og sterk tengsl við atvinnulíf

Kennarar í BSc-náminu eru öflugir sérfræðingar sem hafa aflað sér framhaldsháskólamenntunar í viðurkenndum erlendum háskólum en hafa jafnframt víðtæka reynslu af hagnýtum störfum í atvinnulífi.


 

Umsagnir nemenda í viðskiptafræði

Kristin-Erla-Jonsdottir

„Ég mæli hiklaust með viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík ef þú ert að leita að námi sem gerir miklar kröfur til nemenda."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica