Stúdentspróf eða samsvarandi nám. Aðrar prófgráður koma til greina og eru skoðaðar sérstaklega. Æskilegt er að hafa ákveðna grunnfærni í stærðfræði. Þessi grunnfærni felur í sér grunnalgebru (m.a. veldi, rætur og logarithma), föll, ferla í hnitakerfi og diffrun. Æskilegt er að nemendur hafi a.m.k. lokið stærðfræði 363 eða jafngildi þess. Gerð er krafa um góða færni í íslensku og ensku. Sömu inntökuskilyrði eru fyrir nám í dagskóla og HMV.
Hvað þarf að fylgja með umsókn?
-
Staðfestu (stimpluðu) afriti af stúdentsprófi þarf að skila á pappírsformi í afgreiðslu HR. Skönnuð skírteini eru ekki tekin gild.
- Meðmælabréf (kostur ekki skylda)
Ef umsækjandi hefur lokið námskeiðum á háskólastigi er hægt að sækja um mat á fyrra námi. Reglur og eyðublað vegna mats á fyrra námi.

„Ég valdi viðskiptafræðinám í HR vegna þess að viðskipti snúa að svo miklu meiru en bara að læra kenningar og útreikninga á bók. Með því að fá kennara beint úr atvinnulífinu, gera hagnýt verkefni í samstarfi við fyrirtæki og fá að vinna með og kynnast öðrum viðskiptafræðinemendum náði ég að auka verðmæti námsins til muna."
