Náms- og framvindureglur
Framvinda í BS námi dagskóla
Nemandi flyst upp á annað námsár ef hann hefur lokið a.m.k. 48 ECTS á fyrsta ári. Nemandi skal hafa lokið a.m.k. 90 ECTS áður en hann fer á þriðja ár og hafa lokið öllum skyldunámskeiðum 1.árs. Hámarks námstími er 2 ár ofan á eðlilega framvindu í námi samkvæmt skipulagi námsbrautar.
Framvinda í BS námi í HMV
Nemandi í BS námi í HMV fær að flytjast upp á annað námsár ef hann hefur lokið a.m.k. 36 ECTS á fyrsta ári. Nemandi skal hafa lokið a.m.k. 72 ECTS tveimur árum eftir innritun á fyrsta námsár. Nemandi í BS námi skal hafa lokið a.m.k. 108 ECTS þremur árum eftir innritun á fyrsta námsár. Nemandi í BS námi skal hafa lokið a.m.k. 144 ECTS fjórum árum eftir innritun á fyrsta námsár. Hámarks námstími er 2 ár ofan á eðlilega framvindu í námi samkvæmt skipulagi skólans. Nemandi í diplomanámi skal hafa lokið 90 ECTS á átta önnum.
Forkröfur fyrir námskeið
Forkröfur fyrir einstök námskeið koma fram í kennsluskrá sem má finna á heimasíðu skólans.
Hámarksfjöldi eininga sem nemandi getur tekið
Nemandi í BSc-námi getur að hámarki skráð sig í 36 ECTS einingar á önn. Heimilt er að sækja um undanþágu til verkefnastjóra BS náms, en slík undanþága er aðeins veitt hafi nemandi meðaleinkunn 7,5 eða hærri. Námsstjórn metur hvert tilfelli sérstaklega.
Sjálfstætt verkefni
Nemendur geta óskað eftir því að taka sjálfstætt verkefni (independent study) hjá einstökum kennurum. Getur það bæði átt við um aðlögun á almennu námskeiði sem kennari hefur umsjón með eða vinnu nemanda við sértækt rannsóknarverkefni undir handleiðslu fastráðins kennara við deildina. Í slíkum tilvikum er það alfarið undir viðkomandi kennara komið að samþykkja eða hafna slíkri beiðni. Kennurum ber að upplýsa forstöðumann námsbrautar og verkefnisstjóra um nemendur sem þeir hyggjast leiðbeina í sjálfstæðu verkefni.
Reglur um próftöku
Nemendum er heimilt að sitja hvert námskeið tvisvar og þreyta þau próf sem í boði eru í bæði skiptin. Að sitja námskeið þýðir að nemandi er skráður í námskeið eftir að frestur um úrsögn er liðinn. Standist nemandi ekki námskeið eftir setu í annað sinn, telst hann fallinn úr námi. Ber honum þá að sækja um endurinnritun í námið. Sé honum veitt heimild til endurinnritunar heldur hann einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri. Nemendur geta ekki fengið verkefni eða próf metin á milli anna.
* Umsókn um endurinnritun skal vera skrifleg og skal send til verkefnastjóra BS náms.
Um vinnubrögð, nám og próftöku nemenda í námi í viðskiptafræði gilda eftirfarandi reglur og viðurlög skólans:
Náms- og prófareglur HR
Siðareglur HR
Endurinnritun
Ef nemandi sem uppfyllir ekki skilyrði um framvindu í námi hyggst halda áfram námi ber honum að sækja endurinnritun(*). Viðskiptadeild áskilur sér þann rétt að hafna nemendum um endurinnritun. Sé nemanda veitt heimild til endurinnritunar heldur hann einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri. Sama gildir um nemendur sem hafa hætt námi og kjósa að hefja nám að nýju.* Umsókn um endurinnritun skal vera skrifleg og skal send til verkefnastjóra BSc-náms í viðskiptafræði.
Námshlé
Námshlé er eingöngu veitt af sérstökum ástæðum, s.s. vegna veikinda, barneigna eða slysa. Hámarkslend námshlés er eitt ár. Ef nemandi skráir sig ekki í námskeið að námshléi loknu verður hann skráður úr námi. Umsókn um námshlé skal send til forstöðumanns námsbrautar, fyrir upphafsdag viðkomandi annar og þarf nemandi að tiltaka gilda ástæðu fyrir námshléi. Með umsókn þarf t.d. að berast læknisvottorð ef sótt er um námshlé vegna veikinda. Sé umsókn samþykkt er gerður samningur milli nemandans og skólans um námshlé og ákvæði um námsframvindu útfærð sérstaklega eftir þörfum.

„Kennslan í viðskiptafræðinni er í hæsta gæðaflokki en þar kenna reynsluríkir einstaklingar úr íslensku atvinnulífi. Það, ásamt verkefnavinnu tengdum íslenskum fyrirtækjum, skapar þá tengingu sem skólinn hefur myndað við atvinnulífið."
