Dagskóli
Gert er ráð fyrir að nemendur ljúki BSc-prófi á 3 árum. Að jafnaði eru tekin 5 námskeið (30 ECTS einingar) á hverri önn og telst það fullt nám. Áhersla er lögð á dæmatíma, fjölþætt námsmat og að nýta kosti hópastarfs og verklegrar vinnu nemenda. Kennsla fer almennt fram á tímabilinu 8:35 til 16:30 alla virka daga. Á 3. ári kemur fyrir að kennt er seinni part dags eða í lotum um helgar. Skipulag náms í dagskóla.
Háskólanám með vinnu (HMV)
BSc-gráðu í viðskiptafræði er hægt að ljúka á 10 önnum eða þremur og hálfu ári. Annirnar eru þrjár á ári (haust-, vor- og sumarönn). Að jafnaði eru tekin 3 námskeið á önn (18 ECTS einingar) og má gera ráð fyrir skólasókn þrjá daga vikunnar. Kennt er á tímabilinu 16:35 til 19:00 eða 20:35 mánudaga til fimmtudaga. Einnig kemur fyrir að kennt er í lotum á laugardögum. Nemendur geta að loknu sex anna námi flutt sig yfir í dagskóla og nýta fleiri möguleika á valnámskeiðum, en framboð valnámskeiða í HMV er takmarkað. Skipulag náms í HMV.
Diplómanám
Þeir sem vilja hefja háskólanám með vinnu án þess að skuldbinda sig í 3 ár eða meira geta valið að ljúka diplómanámi við deildina. Diplómanám er 90 ECTS einingar, og tekur 5 annir, eða tvö ár með einni sumarönn. Ef nemendur kjósa að halda áfram námi nýtist diplómanámið að fullu inn í BSc-nám. Skipulag diplómanáms.
Áherslur í BSc-námi
Þeir nemendur sem hafa sérstakan áhuga á einu sviði viðskiptafræðinnar geta útskrifast með áherslu á því sviði, með því að ljúka þremur námskeiðum í bundnu vali (18 ECTS) ásamt BSc-verkefni (12 ECTS) á einu af sex áherslusviðum deildarinnar. Nemendur taka námskeiðin á þriðja ári og eru námskeiðin í dagskóla eða á HMV tíma. Ekki er skylt að ljúka BSc-námi með áherslu heldur geta nemendur tekið valnámskeið af hinum ýmsu sviðum. Áherslur í BSc-námi.


