Hvað kostar að stunda nám?
Sjá upplýsingar um skólagjöld og verðskrá skólans. Með skólagjöldum getur HR boðið nemendum framúrskarandi aðstöðu og aukið gæði skólastarfsins í heild. Skólagjöld miðast við staðgreiðslu og skulu vera að fullu greidd í upphafi hverrar annar. Nemandi sem ekki greiðir skólagjöld sín á gjalddaga getur vænst þess að hafa fyrirgert rétti sínum til að hefja nám eða stunda áframhaldandi nám við skólann.
Eru nýnemar teknir inn á vorönn?
Það er ekki auglýstur umsóknafrestur fyrir vorönn í viðskiptadeild og venjulega eru stúdentar ekki teknir inn á vorin. Það eru þó gerðar örfáar undantekningar á því ef sæti losna. Mestar líkur eru á að nýútskrifaðir stúdentar með mjög góðan námsárangur að baki svo og stúdentar sem hafa verið í háskólanámi annars staðar séu teknir inn á vorönn.
Þurfa nemendur að eiga fartölvur?
Það er ekki nauðsynlegt að eiga fartölvu til að stunda nám í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Kennarar nota internetið mikið í samskiptum við nemendur og þess vegna er nauðsynlegt að hafa aðgang að því. Í skólanum eru tölvur sem nemendur hafa aðgang að og geta notað eins og þeim hentar.
Á hvaða tungumáli er kennt?
Námið fer fram að mestu á íslensku og er gerð krafa um góða færni nemenda í því tungumáli, bæði munnlega og skriflega. Í flestum tilfellum eru þó bækur og annað lesefni á ensku og jafnvel verkefni og próf. Einstök námskeið í náminu eru kennd alfarið á ensku, en það á einkum við um síðari hluta námsins (2. og 3. ár). Því þurfa allir nemendur að hafa góða færni bæði í íslensku og ensku.
Er skyldumæting í tíma?
Það er ætlast til þess að nemendur mæti í alla tíma. Þátttaka nemenda í tímum er mikilvægur þáttur í því að gera námið áhrifaríkt og skemmtilegt. Í sumum námskeiðum er gefin þátttökueinkunn sem gildir inn í lokaeinkunn, þá er mjög mikilvægt að nemendur mæti vel.
Hvað þarf maður til að komast inn?
Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi. Við mat á umsóknum er tekið tillit til einkunna á stúdentsprófi (sérstaklega í íslensku og stærðfræði), frekari menntunar, starfsreynslu og stjórnunarreynslu og reynslu af þátttöku í félagsstörfum. Umsækjendur eru því hvattir til að gera grein fyrir öllu því sem þeir telja geta orðið umsókn sinni til framdráttar. Einkum er mikilvægt að skýrt komi fram af hverju umsækjandi hefur áhuga á náminu og hver eru framtíðaráform umsækjanda. Með umsókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteinum úr framhaldsskóla.Er hægt að stunda nám í viðskiptafræði samhliða starfi?
Boðið er upp á sérsniðið námsfyrirkomulag í viðskiptafræði fyrir fólk með reynslu úr atvinnulífinu sem kýs að sækja sér háskólamenntun samhliða vinnu. Þetta námsfyrirkomulag kallast Háskólanám með vinnu (HMV). Mikilvægt er að þeir sem ætla að stunda vinnu meðfram námi tryggi sér þann sveigjanleika á vinnustað sem nauðsynlegur er, til dæmis varðandi próf sem skipulögð eru utan hinnar hefðbundnu stundatöflu.Hvað er HMV?
HMV er skammstöfun fyrir Háskólanám með vinnu. Námið er ætlað einstaklingum sem hafa öðlast reynslu í atvinnulífinu og vilja sækja sér háskólamenntun á sviði viðskipta samhliða vinnu. Annars vegar er hægt að stunda BSc nám í viðskiptafræði til BSc gráðu (180 ECTS). Hins vegar er boðið upp á diplomanám sem er 90 ECTS eininga nám, en nýtist að fullu kjósi menn að fara alla leið og klára BSc-gráðu. Kennslan í HMV fer alla jafna fram þrjá daga í viku seinni part dags kl.16:35-19:00.
Nemendur í HMV geta að loknu sex anna námi flutt sig yfir í dagskólann til þess að ljúka síðasta árinu þar, og nýtt sér þannig fleiri möguleika á valnámskeiðum, en framboð valnámskeiða á HMV tíma er takmarkað.
Er háskólanám með vinnu (HMV) sambærilegt við viðskiptafræðinám í dagskóla?
Nemandi sem stundar BSc nám í HMV útskrifast með sama próf og nemandi sem stundar BSc nám í viðskiptafræði í dagskóla. Sömu kröfur eru gerðar til nemenda í HMV og nemenda í viðskiptafræði í dagskóla. Nemendur í HMV sækja þó að meðaltali færri kennslustundir en námsefnið er sambærilegt. Færri dæmatímar eru í boði í HMV náminu.Í HMV er einnig boðið upp á diplomanám, það nám er einungis 90 ECTS einingar og því ekki sambærilegt við almennt viðskiptafræðinám, en nýtist þó að fullu kjósi menn að halda áfram í BSc nám.
Hvenær eru próf?
Nemendur þurfa að gera ráð fyrir því að mæta í próf sem eru utan hefðbundinnar stundatöflu. Öll lokapróf eru sameiginleg fyrir dagskóla og HMV og þá þurfa HMV nemar að mæta á dagskólatíma. Einnig er mögulegt að einstök miðannarpróf séu skipulögð utan við hefðbundna stundatöflu, til að hámarka þann tíma sem hægt er að nýta í beina kennslu. en þá er reynt að láta vita af því eins fljótt og unnt er.Er hægt að fara í BSc nám að loknu diplomanámi?
Þeir nemendur sem ljúka diplomanámi geta haldið áfram námi og klárað BSc próf. Öll námskeið sem nemendur ljúka í diplómanámi nýtast þeim í BSc náminu.
Hvað tekur langan tíma að útskrifast með BSc próf í HMV?
Miðað er við að nemendur í HMV stundi nám 3 annir á ári. Haustönn, vorönn og sumarönn. Sumarönnin er í gangi í maí, júní og ágúst, nemendur fá því einungis sumarfrí í júlí. Samkvæmt almennu námsskipulagi ljúka nemendur í HMV 54 ECTS einingum á ári ( 18 ECTS á önn) og með þeim hætti geta nemendur lokið BSc námi á þremur og hálfu ári. Nemendur í dagskóla ljúka BSc námi á þremur árum.
Er hægt að sækja um fjarnám í viðskiptafræði?
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík býður ekki upp á fjarnám. Lögð er áhersla á þátttöku og virkni nemenda í tímum og þess vegna er tímasókn nemenda mikilvæg.
Hvað ef ég hef ekki stúdentspróf?
Við HR er starfandi frumgreinadeild sem hefur það að markmiði að búa fólk, sem hefur framhaldsskólamenntun aðra en stúdentspróf og reynslu úr atvinnulífi, undir háskólanám. Frumgreinadeildin tekur allt að fjögur misseri og er námið lánshæft hjá LÍN. Reynslan sýnir að frumgreinadeildin er mjög góður undirbúningur fyrir háskólanám í viðskiptafræði. Á hverju ári eru gerðar örfáar undantekningar frá kröfunni um stúdentspróf, en slíkar undanþágur eru einungis veittar mjög sterkum umsækjendum. Við mælum með að þeir sem hafa hug á námi í viðskiptafræði en hafa ekki stúdentspróf bæti sérstaklega við sig undirbúningi í stærðfræði, íslensku og ensku.
Hvaða kröfur eru gerðar um enskukunnáttu?
Fyrstu tvö árin fer námið að mestu leyti fram á íslensku en þó geta einstök námskeið strax á fyrstu tveimur árunum verið kennd á ensku. Á 3. ári þurfa nemendur að taka valnámskeið sem eru gjarnan kennd á ensku. Kennslubækur eru flestar á ensku og annað efni frá kennurum getur einnig verið á ensku, t.d. glærur, verkefni og próf. Nemendur þurfa því að hafa náð góðum tökum á enskri tungu áður en þeir hefja nám í viðskiptadeild.
Hvaða kröfur eru gerðar um stærðfræðikunnáttu?
Mikilvægt er að hafa góðan grunn í stærðfræði. Æskilegt er að hafa klárað 12 - 15 einingar í stærðfræði á framhaldsskólastigi sem felur í sér þekkingu á klassíkri algebru þ.m.t. veldi rætur og logarithma og diffrun.


