Háskólanám með vinnu (HMV)
Fullgilt nám samhliða vinnu
Háskólanám með vinnu (HMV) er góður valkostur fyrir einstaklinga sem vilja stunda fullgilt nám í háskóla samhliða vinnu og er ein markvissasta og skilvirkasta leiðin til að rjúfa glerþak frekari frama í atvinnulífinu. BSc-námið í HMV er sambærilegt námi í viðskiptafræði í dagskóla, sömu kröfur gerðar til nemenda og þreyta nemendur sömu próf.
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík er stærsta viðskiptadeild landsins ef miðað er við fjölda nemenda sem útskrifast úr viðskiptadeild og var fyrst til að bjóða háskólanám með vinnu í viðskiptafræði. Deildin hefur útskrifað fjölda einstaklinga sem hafa af dugnaði og eljusemi stundað nám samhliða starfi.
Háskólamenntun í viðskiptafræðum er fjárfesting sem getur skilað betra starfi og meiri starfsánægju ásamt því að vera góður undirbúningur fyrir framhaldsnám.
Aðstaða og skólagjöld
Skólagjöld í grunnnámi eru hin sömu í HMV og dagskóla eða 162.000,- krónur á önn, skólaárið 2011-2012. Með skólagjöldum getur HR boðið nemendum framúrskarandi aðstöðu og aukið gæði skólastarfsins í heild. Smærri nemendahópar gera tengsl nemenda og kennara góð.
Skipulag grunnnáms í HMV
Nemendur í HMV taka að jafnaði 18 ECTS einingar á önn en ekki 30 ECTS eins og nemendur í hefðbundnu dagskólanámi við skólann. Þess í stað er bætt við þriðju önninni (sumarönn) sem er í maí, júní og ágúst (sumarfrí í júlí). Með þessu móti er hægt að ljúka BSc-prófi í viðskiptafræði á þremur og hálfu ári og diplómaprófi á tæpum tveimur árum. BSc-próf er alls 180 ECTS einingar, en diplómapróf er 90 ECTS. Nemendur í diplómanámi geta ákveðið á námstímanum að bæta við sig 90 ECTS og ljúka BSc-gráðu.
Fjórar námsleiðir
Frá haustinu 2010 eru unnt að velja á milli fjögurra námsleiða í viðskiptafræði (HMV):
• BSc í viðskiptafræði (180 ECTS einingar) útskrifast með fagheitið viðskiptafræðingur.• Diplóma með áherslu á fjármál og rekstur (90 ECTS einingar).
• Diplóma með áherslu á stjórnun (90 ECTS einingar).
• Diplóma með áherslu á markaðsfræði (90 ECTS einingar).
Kennslutímar í HMV
Að jafnaði er kennt er þrjá daga í viku frá kl. 16:35 -19:00. Ef dæmatímar eru í námskeiðinu er kennt til kl. 20:35 eða á laugardögum.
Lokapróf í námskeiðum fara þó almennt fram á dagskólatíma og þurfa nemendur í HMV að hafa aðstöðu til að mæta í þau próf. Einnig getur komið upp sú staða að nemendur í HMV séu boðaðir í önnur próf eða mikilvæga fundi á dagskólatíma, en reynt er að halda því í lágmarki.


