Ávarp stjórnanda

Ekki fer á milli mála að mikið umrót hefur verið á fjármálamörkuðum á undanförnum misserum.  Við þær aðstæður skiptir miklu að með reikningshaldi takist að draga upp sannsýna og óhlutdræga mynd af hagrænni sögu fyrirtækja og stofnana til hagsbóta fyrir alla þá sem reiða sig á slíka frásögn.  Mælitækin sem notuð eru við þá iðju eru mannanna verk og því að vonum að reglur um þessar mælingar séu umdeildar en ekki síður hvernig þeim mælitækjum skuli beitt.  Miklar breytingar hafa verið gerðar á reglunum á undanförnum árum og eru ástæður þeirra breytinga margvíslegar og því fer fjarri að núgildandi reglur séu endanlegar og því ögrandi fyrir ungt og efnilegt fólk að taka þátt í því að móta og betrumbæta þá frásagnartækni sem reikningshald og endurskoðun fjallar um. Miklu skiptir að nemendur sem hafa hug á að starfa í þessu geira læri að skynja þetta umhverfi með réttum hætti og átti sig á kostum og göllum regluverksins. Tilgangurinn með reikningshaldi er að koma samfélaginu til góða og það gerist því aðeins að regluverkið sé gott og ekki síður að unnið sé af heilindum.  Í þessum anda starfar Háskólinn í Reykjavík og í því skyni hefur verið safnað saman kennurum úr ýmsum áttum, innlendum og erlendum.  Mikil áhersla er lögð á að þeir hafi ekki aðeins góðan fræðilegan bakgrunn heldur hafi þeir einnig nýlega og mikla reynslu úr atvinnulífinu.

Nemandi góður: kynntu þér hver við erum og hvernig við störfum og svo bjóðum við þig velkominn til starfa.

StefanStefán Svavarsson
Faglegur stjórnandi meistaranáms í reikningshaldi og endurskoðun.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica