Inntökuskilyrði

Ein af eftirfarandi BSc eða BA prófgráðu er nauðsynleg til að umsókn verði metin og tekin til skoðunar.

  • BSc próf í viðskiptafræði eða Cand.Oecon. 
  • BSc eða BA próf í viðskiptafræðum með áherslu á fjármál eða reikningshald
  • BSc eða BA prófi í viðskiptafræðum almennt. (Til athugunar kemur þá hvort viðkomandi þarf að taka viðbótarnámskeið í reikningshaldi og fjármálum í grunnnámi.)
  • BSc eða BA prófi úr öðrum fræðagreinum. Þá er lögð áhersla á að nemendur hafi nýlega lokið eftirfarandi námskeiðum eða sambærilegum:
    - Fjármál I
    - Fjármál II
    - Rekstrargreining
    - Fjárhagsbókhald
    - Gerð og greining ársreikninga

  • Búast má við að umsækjandi þurfi að taka námskeið úr grunnnámi í viðskiptafræðum áður en formlegt meistaranám hefst.

 Hvað þarf að fylgja með umsókn?

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn (annaðhvort á íslensku eða ensku):

  • Staðfestu (stimpluðu) afriti af prófskírteini þarf að skila á pappírsformi í afgreiðslu HR. Skönnuð skírteini eru ekki tekin gild.
  • Ferilskrá ásamt mynd
  • Meðmælabréf sem sent er beint á verkefnastjóra náms af meðmælanda 
  • Á rafrænu umsóknareyðublaði þarf jafnframt að tilgreina hvers vegna umsækjandi óskar inngöngu í námið


Ef umsækjandi hefur lokið námskeiðum á háskólastigi er hægt að sækja um mat á fyrra námi. Reglur og eyðublað vegna mats á fyrra námi.



 



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica