Markmið og áherslur
- Mikil áhersla verður lögð á rækilega rannsókn á efni staðla um reikningsskil fyrirtækja á markaði með því að rýna í staðla Alþjóðlega reikningsskilaráðsins (e. International Accounting Standards Board). Staðlar ráðsins eru auðkenndir IFRS (e. International Financial Reporting Standards).
- Fjallað verður ítarlega um staðla Alþjóðlegra samtaka endurskoðenda (IFAC - International Federation of Accountants) sem einnig hafa fengið aukið vægi vegna
þess að stefnt er að því að skuldbinda endurskoðendur í Evrópu til að beita þeim stöðlum. - Raunhæf verkefni úr íslensku og erlendu viðskiptaum- hverfi verða tekin til skoðunar og horft verður til einstakra atvinnugreina í því skyni að kynna rækilega fyrir nemendum sérvandamál þeirra sem og sérstök viðfangsefni endurskoðenda við rannsókn á ársreikningum.
- Kappkostað verður að kynna fyrir nemendum hin ýmsu endurskoðunarkerfi í nútíma endurskoðun sem byggja á erlendum fyrirmyndum.
- Veruleg áhersla verður lögð á að kynna fyrir nemendum innlend og erlend prófverkefni í löggildingarprófum. Á næstu árum má búast við samhæfingu í prófkröfum á alþjóðlegum vettvangi og því verður kappkostað að undirbúa nemendur eins vel og kostur er á því sviði.
- Fyrir þá sem kjósa fyrirtækjaáherslu fremur en endurskoðunaráherslu í náminu verður áhersla lögð á upplýsingakerfi og samspil fjármálafræða og reikningshalds.
- Áhersla verður lögð á verkefnaskil og yfirferð raunhæfra verkefna í bland við hefðbundna fyrirlestra. Verkefnin taka ekki aðeins til þess að skila tölulegum
lausnum á viðfangsefnum hverju sinni heldur einnig að nemendur þurfi að skila skriflegum greinargerðum sem styðja lausnir. - Meðan á náminu stendur verður framkvæmt gæðamat með virkri þátttöku nemenda. Skipað er gæðaráð en í því, auk kennara, eru fulltrúar nemenda og utanaðkomandi sérfræðingur.

