Meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun (MAcc)
Meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun hentar þeim sem stefna að löggildingu sem endurskoðendur eða vilja ná langt á sviði fjármálastjórnunar innan fyrirtækja. Fyrsta árið er sameiginlegt og svo er hægt að sérhæfa sig í reikningshaldi og endurskoðun eða stjórnunarreikningsskilum og viðskiptafærni. Þeir sem velja endurskoðun stefna alla jafna að því að verða löggiltir endurskoðendur og áhersla í námi þeirra varðar endurskoðun, gerð ytri reikningsskila, skattamál og skyldar greinar, einkum fjármálafræði.
Meistaranám í stjórnunarreikningsskilum og viðskiptafærni (MABI)
Í stjórnunarreikningsskilum og viðskiptafærni er horft á reikningshaldið út frá öðru sjónarhorni og áhersla lögð á að miðla upplýsingum til stjórnenda fyrirtækja og stofnenda sem unnar eru úr innri gögnum þeirra. Slíkt nám höfðar til verðandi fjármálastjóra og aðalbókara. Áherslan í slíku námi er einkum á nýtingu reikningshalds í þágu stjórnenda og hönnun upplýsingakerfa hvers konar, en síður á endurskoðun og skattamál.

