BSc-nám

Forstöðumaður

Hrefna Sigríður Briem er forstöðumaður BSc-náms. Hún starfar í umboði deildarforseta og er ábyrg fyrir námsbrautinni. Forstöðumaður heldur fundi í námsstjórn og gæðaráði BSc-náms.

Námsstjórn

Í námsstjórn BSc-náms sitja tveir fastir kennarar deildarinnar, forstöðumaður BSc-náms og verkefnastjóri BSc-náms. Forstöðumaður er formaður stjórnar og tilnefnir hina tvo til eins árs í senn. Fundargerðir ráðsins eru aðgengilegar öðrum starfsmönnum deildarinnar. Námsstjórn er ábyrg fyrir eftirtöldum atriðum:

  • Uppbyggingu námsins, þróun þess og gæðamati.
  • Uppbyggingu nýrra námsbrauta eða námsleiða innan BSc-náms.
  • Inntöku nýnema í BSc-nám og mati á fyrra námi þeirra.
  • Nemendaskiptum við aðra háskóla á BSc-stigi.
  • Framvindu- og prófareglum.

Gæðaráð

Í gæðaráði BSc-náms eiga sæti forstöðumaður BSc-náms, verkefnastjóri  BSc-náms, einn trúnaðarmaður nemenda á hverju námsári í dagskóla og einn trúnaðarmaður HMV nemenda. Gæðaráð er vettvangur umræðna og skoðanaskipta um gæði kennslu og framkvæmd námskeiða. Forstöðumaður skal kalla saman fund að minnsta kosti einu sinni á önn en trúnaðarmenn geta óskað eftir fundi þegar þörf krefur.

Ráðgjafarnefnd

Til að tryggja að viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík verði fyrsta val þeirra fyrirtækja og stofnana sem vilja ráða nýútskrifaða viðskiptafræðinga til starfa höfum við fengið þekkta forystumenn úr íslensku atvinnulífi til að sitja í ráðgjafarnefnd námsins. Ráðgjafarnefndin er okkur til ráðgjafar um ýmis mál sem snúa að þróun námsins og tengslum þess við atvinnulífið.




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica