Rannsóknir viðskiptadeildar
Nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi
Rannsóknir á nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi eru unnar innan Rannsóknarmiðstöðvar HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum. Þar á meðal er þátttaka í alþjóðlegri rannsókn á frumkvöðlastarfsemi (Global Entrepreneurship Monitoring) og rannsóknir á nýjum tæknifyrirtækjum.
Einkaframkvæmd
Markmið Rannsóknarstofnunar um einkaframkvæmd (REF) er að efla rannsóknir sem stutt geta við samvinnu hins opinbera og einkaaðila með einkaframkvæmd. Það markmið er í samræmi við stefnu Háskólans í Reykjavík sem hefur það að leiðarljósi að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Rannsóknarstofnun í fjármálum og hagfræði
Hlutverk stofnunarinnar er m.a. að vera vettvangur fyrir hagnýtar og fræðilegar rannsóknir á sviði fjármálafræði og hagfræði. Á RFHHR er unnið að því að auka þekkingu og skilning á íslensku efnahagslífi innanlands sem erlendis. Stofnunin er jafnframt vettvangur fyrir samskipti og samvinnu fjármálastofnana, stjórnvalda og fræðasamfélagsins á sviði fjármála- og hagfræði.
Útgáfa - Working Papers
Á vegum viðskiptadeildar er gefin út ritröð um rannsóknir á sviði viðskiptafræða og skyldra greina. Ritröðin er ritrýnd og er markmiðið með útgáfu hennar tvíþætt. Annars vegar að veita fræðimönnum endurgjöf á rannsóknir sínar til þess að undirbúa birtingu í ritrýndum tímaritum og hins vegar að koma á framfæri efni sem bíður birtingar. Ritröðin er öllum opin.
Cranet
Háskólinn í Reykjavík er aðili að Cranet (Cranfield Network on International Human Resource Management) rannsóknarsamstarfinu, sem fulltrúi Íslands. Cranet eru samtök háskóla og rannsóknarstofnana í 49 löndum sem hafa það að markmiði að kanna aðferðir og stöðu mannauðsstjórnunar víðsvegar um heiminn. Cranet könnunin, sem er stærsta á áreiðanlegasta óháða rannsóknin á þessu sviði, er framkvæmd þriðja hvert ár. Nánari upplýsingar um rannsóknarsamstarfið má finna á http://www.cranet.org/. Starfsmenn viðskiptadeildar sem koma að verkefninu eru: Arney Einarsdóttir, lektor, er verkefnisstjóri verkefnisins, Dr. Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og gæða hjá HR, Dr. Finnur Oddsson, framkvæmdarstjóri Viðskiptaráðs Íslands og Hlín Kristbergsdóttir, meistaranemi og aðstoðarmaður við verkefnið.

