Einkaframkvæmd

Háskólinn í Reykjavík starfrækir rannsóknarstofnun sem miðar að því að efla rannsóknir sem stutt geta við samvinnu hins opinbera og einkaaðila með einkaframkvæmd. Það markmið er í samræmi við stefnu háskólans sem hefur það að leiðarljósi að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Rannsóknarstofnunin er þverfaglegur vettvangur innan og utan háskólans enda geta málefni einkaframkvæmdar legið á breiðu sviði. Viðskiptafræðideild, lagadeild og tækni- og verkfræðideild  koma að rannsóknum og verkefnum rannsóknarstofnunarinnar. Aðilar úr viðskiptalífinu eru mikilvægir þátttakendur og býr rannsóknarstofnunin að ráðgjafarráði sem er stefnumarkandi gagnvart áherslum og uppspretta hagnýtra rannsókna.

Markmið er að rannsóknarstofnunin skili aukinni reynslu og þekkingu um einkaframkvæmd. Stefnan er að eiga samskipti við aðra sérfræðinga og fá aðgang að upplýsingum hjá erlendum háskólum og samstarfsaðilum. Höfð er þátttaka um erlendar og innlendar ráðstefnur og málstofur. Rannsóknir og verkefni eru unnin af sérfræðingum, kennurum og nemendum í BS-, MS-, MBA- og doktorsnámi. Hægt er að setja sig í samband við rannsóknarstofnunina og biðja um samvinnu og samstarf um einstök verkefni.

Forstöðumaður

Þröstur Olaf Sigurjónsson, MBA, ref@ru.is / 599 6245


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica