Danmörk

 

Einkaframkvæmd og einkavæðing hefur verið mikið deilumál í Danmörku eins og víðar. Þrátt fyrir að einhver árangur hafi náðst í að koma fram einkaframtaki á sviðum almenningssamganga, fjarskiptamála, flugvalla og heilsugæslu hafa aðferðir eiginlegra einkaframkvæmda lotið í lægra haldi fyrir eignarhaldi og fjármögnun hins opinbera. Danir tóku þá meðvituðu ákvörðun (að eigin sögn) að bíða og sjá þegar til með einkaframkvæmdir.  Hugmyndin var að reyna að læra af mistökum nágrannaríkjanna og sleppa við óþarfa þróunarkostnað.

 

Verkefni

Store Belt Crossing (Great Belt Crossing) – Kostnaður: 43 miljarðar danskar krónur. Brúin er næststærsta hengibrú heims. Byggingaraðili brúarinnar, eigandi og rekstraraðili er fyrirtækið A/S Storebeltsforbindelsen sem stofnað var af samgönguráðuneyti Danmerkur. Meira um verkefnið og önnur slík hér

 

Í september 2005 var undirritaður 16 milljóna evra samningur um einkaframkvæmd vegna Vildbjerg skole í Trehøje á Vestur-Jótlandi.  Þetta er fyrsta einkaframkvæmd af hálfu borgar eða bæjar í Danmörku. Um fjármögnun sá þýski bankinn Nodr/LB.

 

Framtíðin

6. árlegi leiðtogafundur PPP var haldinn í Kaupmannahöfn 15.-17. nóvember árið 2005.  Í opnu bréfi, varðandi fundinn, frá Bendt Bendtsen, viðskipta- og efnahagsráðherra, kom fram að Danir væru í mun ríkara mæli að skoða beitingu einkaframkvæmdar í Danmörku.  Bendtsen sagði dönsk stjórnvöld gera sér fulla grein fyrir kostum einkavæðingar. 

 

Á áætlun er að byggja danska þjóðskjalasafnsið í Kaupmannahöfn í einkaframkvæmd og er það verkefni upp á 75 milljón evrur sem bjóða á út 2006.

 

Bygging vegar milli Sönderborg og E45 í Suður-Jótlandi hefur verið samþykktur sem einkaframkvæmd og nemur kostnaðaráætlun um 135 milljónum evra.

 

Einnig er hugsanleg einkaframkvæmd í Fredriksborg þar sem brúa á, eða grafa göng, yfir fjörð til Hrólarskeldu.  (The Roskilde Fjord Fixed Link)


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica