Finnland

 

Finnar hafa nú þegar nýtt sér einkaframkvæmd í samgöngumálum og eru þar nokkur stór verkefni að baki. Samstarf hins opinbera og einkaaðila á sér langa sögu í Finnlandi og hefur til að mynda dreifing vatns verið unnin með nokkurs konar PPP í áraraðir. Í þessu tilfelli er þó ekki um eiginlega einkaframkvæmd að ræða. Lagaleg ákvæði hafa hægt á framþróun einkaframkvæmdar í Finnlandi eins og víðar.

 

Verkefni

Fyrsta einkaframkvæmdarverkefni Finna var The järvenpää-Lahit motorway sem hófst árið 1997. Var þá gerður samningur við fyrirtækið Tieyhtio Nelostie Oy, einn af fimm tilboðsaðilum, um skipulagningu, byggingu, fjármögnun og viðhald á veginum í 15 ár. Samingurinn kostar um 15-17 milljón evrur á ári og stjórnast upphæðin af umferðaþunga.

 

The Agora Human Technologies Centre við Háskólann í Jyväskylä var einnig unnin í einkaframkvæmd. Verkefninu lauk sumarið 2000.

 

Árið 2005 var ákveðin 335 milljón evra vegaframkvæmd fyrir 51 km leið frá Muurla til Lohja.  Verkefnið inniheldur 76 brýr, 8 slaufu-gatnamót og 5 km af tvöföldum göngum (e. twin tunnels). Vegurinn er partur af Nordic Triangle sem Evrópuráðið hefur skipað sem eitt af forgangsverkefnum í samgöngumálum innan Evrópu.

 

Lahiti-Vainikkala verkefnið gengur út á endurbætur og viðhald á 150 km af lestarteinum og er til skoðunar til einkaframkvæmdar.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica