Sagan hefst árið 1996 með vinnslu á jarðgöngum undir Hvalfjörðinn. Verkefni þetta er þó frábrugðið hefðbundnum einkaframkvæmdarverkefnum að því leyti að frumkvæði að gangagerðinni kemur frá einkaaðilum þó svo að opinberir aðilar komi að því með öðrum hætti. Verkið var því ekki boðið út.
Í ljósi sérstöðu Hvalfjarðarganganna má því segja að fyrsta eiginlega einkaframkvæmdin sé bygging og rekstur húsnæðis Iðnskólans í Hafnarfirði árið 1998.
Verkefni
Dæmi um verkefni framkvæmd með einkaframkvæmd á Íslandi. Úrtakið er ekki tæmandi.
| VERKEFNI | ÁR | UNNIÐ FYRIR | UNNIÐ AF | MILLJ. KR. |
| Hvalfjarðargöng | 1996 | Sjálfstætt | Spölur ehf | 4.630 |
| Iðnskólinn í Hafnarfirði | 1998 | Menntamálaráðuneytið / Fjármálaráðuneytið / Hafnarfjarðarbær | Nýsir/Ístak/Ísb | 1.645 |
| Reykjaneshöll | 1999 | Reykjanesbær | ÍAV/Landsafl | 945 |
| Hjúkrunarheimili við Sóltún | 2000 | Ríkið | Öldungur | 12.000 |
| Leikskóli í Grindavík | 2000 | Grindavíkurbær | Nýsir/Ístak | 17 |
| Leikskóli að Háholti í Hafnarfirði | 2000 | Hafnarfjarðarbær | Nýsir/Ístak | 507 |
| Grunnskóli í Áslandi, Hafnarfirði | 2000 | Hafnarfjarðarbær | FM-hús | 98 |
| Leikskóli í Áslandi, Hafnarfirði | 2000 | Hafnarfjarðarbær | FM-hús | 400 |
| Egilshöll | 2000 | Reykjavíkurborg | Járnbending/TSH ehf/Inn-sport ehf | 2.000 |
| Bjarkarhús | 2001 | Hafnarfjarðarbær | Nýsir/Ístak | 1.405 |
| Leikskóli á Hörðuvöllum, Hafnarfirði | 2001 | Hafnarfjarðarbær | FM-hús | 525 |
| Lækjarskóli í Hafnarfirði | 2001 | Hafnarfjarðarbær | Nýsir/Ístak | 5.100 |
| Nýsköpunarhús Háskólans á Akureyri | 2003 | Hafnarfjarðarbær | ÍAV/Landsafl/ISS | 1.500 |
| Leikskólinn Sjáland í Garðabæ | 2004 | Garðabær | Nýsir/Ístak/Ísb | n.a. |
Athygli vekur mikill fjöldi verkefnanna er boðinn eru út af Hafnarfjarðarbæ á árunum 2000 og 2001. Fjármagnstölur eru á verðlagi tilgreindra ártala viðkomandi verkefna. Flestum ofangreindum verkefnum eru gerð greinargóð skil í skýrslu Verslunarráðs Íslands frá 2004, Einkaframkvæmd - samkeppni á nýjum sviðum, sem tekur á stöðu og sögu einkaframkvæmdar á Íslandi.
Framtíðin
Líklegt verður að teljast að einkaframkvæmd eigi sér þó nokkra framtíð á Íslandi. Jákvæð reynsla af framkvæmd og rekstri Hvalfjarðarganganna hefur ýtt undir hugmyndir um nýtingu einkaframkvæmdar til gerðar samgöngumannvirkja.
Nokkur verkefni sem nefnd hafa verið
- Lagning Sundabrautar, áætlaður kostnaður á bilinu 7,5 til 14,5 milljarðar kr.
- Tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík, áætlaður kostnaður um 12,5 milljarðar kr.
- Heilsársvegur um Stórasand, skv. tillögum Norðurvegar
- Tvöföldun Suðurlandsvegar, skv. tillögum Sjóvár
- Mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar

