Árið 2001 samþykkti Norska þingið samgönguáætlun fyrir árin 2002-2012. Í þessari áætlun var meðal annars að finna þrjár vegaframkvæmdir sem ætlaðar voru sem eins konar tilraunaverkefni fyrir einkaframkvæmd í Noregi. Samningar voru undirritaðir árið 2005 um að reisa skólabyggingu í Ósló sem tilraunaverkefn í einkaframkvæmd í Noregi. Eftir endurskipulagningu í heilbrigðismálum í Noregi árið 2001 er nú heilsugæsla að mestu leyti í einkaframkvæmd.
Verkefni
Í ágúst 2005 var opnað fyrir umferð um hraðbraut milli Klett og Baardshaug (E39) í Noregi. Þar með hófst notkun á fyrstu einkaframkvæmd Norðmanna, tveimur mánuðum á undan áætlun. Verkefnið nemur 140 milljónum evra en framkvæmdaraðilinn innheimtir toll um veginn og tekur áhættu á nægum umferðarþunga. Öðrum hluta verkefnisins, hraðbraut milli Lyngdal og Flekkefjord (E39), hefur verið úthlutað fyrir 129 milljón evrur. Þriðji hluti tilraunaverkefnis Norðmanna nemur 250 milljónum evra og er vegagerð milli Grimstad og Kristiansand (E18). Gert er ráð fyrir samingum árið 2006.
Framtíðin
Í skoðun eru tillögur að einkaframkvæmd á sjúkrahúsum, fangelsum og járnbrautakerfi í Noregi auk dreifingar vatns. Gera má ráð fyrir fleiri útboðum í Noregi um leið og mat stjórnvalda á tilraunaverkefnunum þremur liggur fyrir.

