SoS - Spurt og Svarað

Algengar spurningar

Hvað er einkaframkvæmd?

Hugtakið einkaframkvæmd er þýðing á ensku hugtökunum Public-Private Partnership (PPP) - Wikipedia og Private Finance Initiative (PFI).

Hafa ber í huga að notkun þessara hugtaka er oft og tíðum ruglingsleg og ónákvæm. Á það þá sérstaklega við um notkun hugtaksins PPP.

Segja má að PPP eigi við um samskipti einkaaðila og hins opinbera / sveitarfélaga í viðskiptalegum tilgangi. Enn fremur má því segja að PFI (e. Private Finance Initiative) sé aðeins ein tegund af PPP, með ákveðnum skilyrðum, og sé það sem við köllum í daglegu tali einkaframkvæmd.

Ekki líta þó allir á málið þessum augum. Lárus Sigurðsson heldur því til að mynda fram í ritgerð sinni, Einkaframkvæmd, ný leið í ríkisrekstri, sem út kom árið 1999, að enginn fræðilegur munur sé í raun á PPP og PFI. Hann segir breska verkamannaflokkinn hafa tekið upp notkun á hugtakinu PPP í stað PFI í pólitískum tilgangi (Lárus Sigurðsson, 1999, bls. 44).

Verslunarráð Íslands skilgreinir einkaframkvæmd í skýrslu sinni frá 2004, Einkaframkvæmd - samkeppni á nýjum sviðum, á eftirfarandi hátt:

"Hugtakið einkaframkvæmd spannar nokkuð breitt svið og getur falið í sér ólíka hluti. Almennt má þó segja að einkaframkvæmd liggi einhversstaðar á bilinu milli einkavæðingar annars vegar og opinberra framkvæmda og opinberrar þjónustu hins vegar. Einkaframkvæmd hefur verið skilgreind sem sú aðferð að bjóða út á samkeppnisgrundvelli þjónustu sem áður var nær alfarið á herðum hins opinbera og hið opinbera vill áfram stuðla að eða fjármagna. Fjármögnun þjónustunnar getur verið að mestu leyti með þjónustugjöldum eða samningsbundnum greiðslum frá hinu opinbera. Einkaframkvæmd hefur helst skilað árangri þar sem mestur hluti þjónustunnar, þ.e. bæði umgjörð og þjónustan sjálf er boðin út á samkeppnisgrundvelli. Með einkaframkvæmd má segja að samkeppni sé innleidd á sviðum sem hafa verið einokuð af ríkinu. Sú samkeppni getur skilað betri þjónustu, sparnaði og fjölbreytni". (Verslunarráð Íslands, 2004).

Notast er við hugtakið PPP yfir hvers konar viðskiptalegt samstarf milli opinberra aðila og einkaaðila.

Sjá skilgreiningu á hugtakinu: http://www.4ps.co.uk/Home.aspx?PageID=5.1

Staðreyndir og tölfræði um einkaframkvæmd: http://www.pppforum.com/faq.html


Hverjir eru helsti kostir einkaframkvæmdar?

Kostir einkaframkvæmdar eru ótal margir og mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni. Hugmyndin að baki einkaframkvæmd er að ná fram hagræðingu í rekstri almannaþjónustu og í öðrum þáttum, með því að leitast eftir bestu og hagkvæmustu lausn sem unnt er að ná hverju sinni. Þannig er leitast við að nýta hagkvæmniskraft samkeppnisumhverfis auk þess sem sérþekking atvinnulífsins fær að njóta sín til fulls.

Reynsla af einkaframkvæmd sýnir fram á þó nokkurn sparnað þar sem aðferðafræðinni hefur verið beitt. Ekki er óalgengt að talað sé um allt að 15-20% sparnað í byggingar- og rekstrarkostnaði.

Í skýrslu Verslunarráðs Íslands frá 2004 kemur meðal annars fram að haldbærustu innlendu upplýsingarnar sé að finna í verkefnum Hafnarfjarðarbæjar síðastliðinna ára. Þar má sjá að sparnaður er samtals um 4% sé miðað við kostnaðaráætlanir bæjaryfirvalda fyrir viðkomandi verkefni.

Einkaframkvæmd getur verið leið til að afla fjármagns til framkvæmdar á verkefnum sem bíða átekta hjá hinu opinbera. Nægir þar að nefna Hvalfjarðargöngin sem fjármögnuð voru af einkaaðilum sem sjá svo um að innheimta vegatoll og greiða niður mannvirkið. Ólíklegt verður að teljast að gengið hefði verið í þessa framkvæmd, í það minnsta á þessum tíma, ef ekki hefði komið til einkaframkvæmdar.

Um gildi einkaframkvæmdar í kanadískri samantekt: http://strategis.ic.gc.ca/epic/internet/inpupr-bdpr.nsf/en/h_qz01545e.html

Á hvaða sviðum er einkaframkvæmd nýtileg?

Framan af voru aðferðir einkaframkvæmdar fyrst og fremst notaðar í samgönguvirkjunum. Einkaframkvæmd hentar vel á því sviði. Um er að ræða umfangsmiklar fjárfestingar með langan líftíma, litla áhættu, einfaldan rekstur og auðvelt er að koma að gjaldtöku.

Hins vegar er styttra síðan farið var að notast við einkaframkvæmd á öðrum sviðum í Norður-Evrópu. Hér að neðan eru dæmi um verkefni sem henta vel til einkaframkvæmda.

Samgönguvirki
Á þessu sviði er einkaframkvæmd hvað algengust. Hér á landi hefur þetta form verið notað við gerð Hvalfjarðarganga og gefist einkar vel. Næsta stóra verkefni á þessu sviði gæti orðið Sundabraut.

Flugvellir og flugstöðvar
Rekstur þeirra og uppbygging er fjárfrek og hefur víða erlendis verið falin einkaaðilum.

Hafnir
Víða erlendis annast einkafyrirtæki uppbyggingu og rekstur hafna. Mörg dæmi eru um að hafnir séu hlutafélög.

Veitur, orkufyrirtæki og fjarskiptafyrirtæki
Á þessum sviðum er víða verið að endurskipuleggja starfsemina og innleiða samkeppni en þó þannig að flutningskerfin séu áfram í eigu hins opinbera. Á þessu sviði má sjá fyrir sér mörg verkefni í einkaframkvæmd.

Skrifstofubyggingar
Fjárfestingarþörf hins opinbera í skrifstofuhúsnæði er mikil. Í sumum tilfellum hefur verið farin sú leið að gera langtímaleigusamning við einkaaðila um byggingu og rekstur húsnæðis fyrir opinbera starfsemi. Húsnæði hins opinbera, sem þarfnast umtalsverðra endurbóta, má jafnframt selja til einkaaðila sem hluta af samningi um einkaframkvæmd sem fæli í sér endurbyggingu og viðhald. Auk þess mætti fela einkaaðila að annast ýmsa stoðþjónustu í byggingunni.

Fangelsi
Fangelsi hafa verið færð í hendur einkaaðila í ýmsum löndum, ýmist með einkaframkvæmd eða útboðum á rekstri.

Skólar
Fela má einkaaðilum uppbyggingu og rekstur skólamannvirkja á öllum skólastigum.

Sjúkrahús og heilsugæslustöðvar
Rekstur og bygging þeirra er umfangsmikið verkefni sem fallið getur ágætlega að einkaframkvæmd. Ef ekki er áhugi á að fela verktökum lækningaþáttinn eða hjúkrun má fela einkaaðila stoðþjónustu, t.d. rekstur eldhúss og þvotta, þrif, öryggisgæslu, tölvuþjónustu, húsvörslu o.fl.

Dvalarheimili aldraðra og hjúkrunarheimili
Eftir því sem þjóðin eldist eykst þörfin fyrir sérhönnuð híbýli aldraðra. Það má fela einkaaðilum að annast uppbyggingu og þjónustu á þessum sviðum í mun ríkari mæli en nú er gert. Sjálfseignarstofnanir hafa byggt og rekið slík heimili hér á landi.

Sambýli fatlaðra
Sambýli fatlaðra eru stundum í einbýlishúsum sem hafa verið löguð að þörfum íbúa. Einkaaðilar geta hvort heldur sem er séð um útvegun og rekstur húsnæðisins eða tekið að sér rekstur slíks sambýlis.

Meðferðarheimili
Meðferðarheimili fyrir börn og unglinga á vegum Barnarverndarstofu hafa verið í einkarekstri og á það við um útvegun húsnæðis, aðstöðu og rekstur. Þetta fyrirkomulag hefur tekist vel.

Úr skýrslu Sigfúsar Jónssonar, framkvæmdastjóra Nýsis hf

Hverjir eru helstu ókostir einkaframkvæmdar?
Sá þáttur sem mest hefur verið gagnrýndur þegar kemur að einkaframkvæmd er trúlega lánakjaramismunur hins opinbera og einkaaðila. Ljóst er að hið opinbera hefur enn þá möguleika á hagstæðari lánum en gengur og gerist í atvinnuumhverfinu. Engu að síður hefur þetta bil verið á undanhaldi undanfarin ár, einkum og sér í lagi vegna góðrar almennrar reynslu á einkaframkvæmdum. Hafa ber í huga að sú hagræðing, sem einkaframkvæmd hefur að jafnaði í för með sér, brúar þetta bil vel ríflega.



Fleiri algengar spurningar og svör varðandi einkaframkvæmd má finna á  síðu Private Finance Initiative - PPP Forum í Bretlandi:  http://www.pppforum.com/faq.html#faqs

Einnig á síðu Public-Private Partnership (P3) Office í Kanada: http://strategis.ic.gc.ca/epic/internet/inpupr-bdpr.nsf/en/h_qz01586e.html

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica