Einkavæðing og tengd málefni hafa verið afar umdeild í Svíþjóð. Almennt má þó segja að sænsk stjórnvöld hafi sýnt einkaframkvæmd þó nokkurn áhuga. Eftir þingkosningar haustið 2002 mynduðu svo sósíaldemókratar minnihlutastjórn. Í stjórn þessi er þó nokkur andstaða við þær fjármögnunaraðferðir einkaaðila sem beitt er við einkaframkvæmd.
Árið 2000 gaf iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti Svía út skýrslu þar sem áhuga var lýst á að nýta einkaframkvæmd til vegaframkvæmda auk járnbrautasmíða. Gerð voru drög að því að fjórum tilraunaverkefnum yrði komið á laggirnar í landinu.
The Arlanda Railroad Project er stærsta einkaframkvæmdarverkefni Svía. Verkefnið hófst árið 1999. Með framkvæmdinni var hrundið einokun í rekstri járnbrautakerfis Svía líkt og gert var svipuðum hætti í Bretlandi.
Svíar hafa gert nokkrar tilraunir með einkaframkvæmd í heilbrigðismálum. Þar ber helst að nefna The Health Revolution.
Framtíðin
Árið 2001 voru komin á innra skipulag göng í Malmö, göng í gegnum Hallandsås í Suður-Svíþjóð, hraðbraut norðan við Stokkhólm og Botiabanan járnbraut í Norður-Svíþjóð, allt verkefni sem áður höfðu verið nefnd í sabandi við einkaframkvæmd.

