Rannsóknarmiðstöð HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum

 

HLUTVERK

Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvar HR í nýsköpunar og frumkvöðlafræðum er að efla hæfni til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi í íslensku atvinnulífi. Í því felst að:

  1. stunda raunrannsóknir á sviði nýsköpunar og frumkvöðlafræða,
  2. eiga samskipti við rannsóknaraðila sem eru í fremstu röð í rannsóknum á nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi,
  3. kynna niðurstöður rannsókna á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi,
  4. veita ráðgjöf þeim aðilum sem vilja efla nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi á Íslandi.

 

ÁHERSLUR

Í upphafi er lögð áhersla á rannsóknir á þremur sviðum:

  • Umfang og umhverfi frumkvöðlastarfsemi. Þessar rannsóknir, sem tengjast alþjóðlegu GEM rannsókninni (Global Entrepreneurship Monitor), snúa að stofnun nýrra fyrirtækja. Sérstök áhersla er lögð á málefni sem tengjast frumkvöðlamenntun, sprotafjármögnun og hlutverki stjórnvalda.
  • Tæknimiðuð frumkvöðlastarfsemi. Rannsóknir á þessu sviði leggja áherslu á stofnun, vöxt og viðgang nýrra tæknifyrirtækja. Bæði er fjallað um það nýsköpunarumhverfi sem fyrirtækin eru hluti af og innri stjórnun þeirra.
  • Upplifunarmiðuð frumkvöðlastarfsemi. Þessar rannsóknir snúa að sköpun og nýtingu viðskiptatækifæra innan skapandi atvinnugreina og annarra greina þar sem upplifum viðskiptavina er í brennidepli.

 

BAKGRUNNUR

Á síðustu misserum hafa verið umræður um mikilvægi nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi fyrir íslenskt efnahagslíf. Einstök fyrirtæki þurfa á nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi að halda til þess að standast samkeppni við önnur fyrirtæki og jákvæð þróun efnahagslífsins í heild er háð því umróti og endurnýjun sem fylgir uppgötvun og nýtingu nýrra viðskiptatækifæra. Hæfni til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi er því einkar mikilvægur þáttur í íslensku atvinnulífi.

Rannsóknir á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi efla skilning á þeim viðfangsefnum sem frumkvöðlar fást við og því umhverfi sem þeir starfa í. Þetta á sérstaklega við um raunrannsóknir, þ.e. rannsóknir sem byggja á söfnun og úrvinnslu gagna. Slíkar rannsóknir geta þess vegna hjálpað bæði þeim sem taka þátt í nýsköpunar- og frumkvöðlaferlum, t.d. frumkvöðlum og fjárfestum, auk þeirra aðila, t.d. stjórnvalda, sem vilja styrkja umhverfi til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi.

Mikilvægt er að þær raunrannsóknir sem eru stundaðar á Íslandi séu unnar í samvinnu við þá rannsóknaraðila sem eru í fremstu röð í heiminum á þessu sviði. Slík samvinna eykur skilvirkni rannsóknanna þar sem hægt er að taka mið af því sem áður hefur verið gert og tryggir að rannsóknirnar séu faglega unnar. Í slíkri samvinnu er mikilvægt að RNF sé bæði gefandi og þiggjandi, þ.e. að á vegum stofnunarinnar séu stundaðar rannsóknir sem eru gjaldgengar í alþjóðlegu samhengi.

Öflugar raunrannsóknir og þátttaka í alþjóðlegu rannsóknarsamfélagi eru þó ekki markmið í sjálfu sér. Slíkar rannsóknir og þátttaka eru forsendur fyrir því að geta gefið góðar ráðleggingar til þeirra sem vilja stunda eða efla slíka starfsemi, t.d. til aðila í atvinnulífinu, menntastofnana eða stjórnvölda.

STARFSFÓLK
Marina Candi, research fellow


 

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica