GEM - alþjóðleg rannsókn á frumkvöðlastarfi
Háskólinn í Reykjavík er aðili að veigamestu rannsókn á frumkvöðlastarfsemi sem gerð er í heiminum (GEM - Global Entrepreneurship Monitor).
Megintilgangur verkefnisins inn er að rannsaka umfang og eðli frumkvöðlastarfsemi með því að afla samanburðarhæfra gagna víðsvegar um heiminn. Með tímanum vonast aðstandendur rannsóknanna til þess að geta útskýrt áhrif frumkvöðlastarfsemi á hagvöxt. Nauðsynlegt er fyrir þá sem vinna að uppbyggingu atvinnustefnu hvers lands að geta nálgast upplýsingar um umhverfi frumkvöðlastarfsemi og nýsköpunar, drifkrafta og hindranir.
Bakgrunnur rannsóknarinnar er sá að árið 1997 leiddu London Business School og Babson College saman helstu sérfræðinga heims á sviði frumkvöðlastarfsemi. London Busines School og Babson College í BandaríkjunumSkólarnir tveir eru í forsvari fyrir rannsóknina sem er gerð árlega en um 40 lönd taka þátt.
GEM-rannsóknin er eina rannsóknin þar sem safnað er samræmdum gögnum um frumkvöðlastarfsemi um allan heim. Í GEM-rannsókninni er frumkvöðlastarfsemi skilgreind sem starfsemi sem miðar að því að koma á fót nýrri viðskiptastarfsemi, hvort heldur sem er með stofnun fyrirtækis eða með því að hefja sjálfstæða atvinnustarfsemi á einhvern annan hátt. Kannað er hversu margir einstaklingar taka þátt í frumkvöðlastarfsemi í hverju landi, hvað einkennir frumkvöðlastarfsemi í hverju landi og við hvaða aðstæður hún er stunduð. Gagnaöflun fer þannig fram að gögnum er á hverju ári safnað með spurningakönnununum meðal almennings og sérfræðinga og eru íslensku gögnin borin saman við önnur lönd og fyrri ár.
Árlega eru gefnar út skýrslur með niðurstöðum rannsóknarinnar og efni þeirra kynnt í fjölmiðlum, bæði hérlendis og erlendis.

