SVVT Stofnun, vöxtur og viðgangur íslenskra fyrirtækja
Langtímarannsókn á vegum Rannsóknarmiðstöðvar HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum
Verkefnið Stofnun, vöxtur og viðgangur íslenskra tæknifyrirtækja snýst um að fylgja nýjum íslenskum tæknifyrirtækjum yfir nokkurra ára skeið og rannsaka ýmsa þætti sem skipta miklu máli á þessu mikilvæga æviskeiði fyrirtækja. Hópur íslenskra tæknifyrirtækja tekur þátt í rannsókninni og staðan hjá þeim er tekin einu sinni á ári.

