Niðurstöður

 

 

Niðurstöður

 

Kynningarfundir fyrir þátttakendur

Haustið 2005 var boðað til morgunverðarfundar þar sem kynntar voru fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar fyrir þátttakendum. Rögnvaldur J. Sæmundsson fór yfir niðurstöður varðandi stofnun fyrirtækjanna og Marina Candi fjallaði um aðstöðu og árangur fyrirtækjanna árið 2004 og spá þeirra um árið 2005. Þátttakendur í rannsókninni fengu í kjölfar fundarins senda samantekt niðurstaðna ársins 2005.

Haustið 2006 var leikurinn endurtekinn og þátttakendum boðið í léttar veitingar og spjall í lok vinnudags. Rögnvaldur J. Sæmundsson fór yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar 2006 en að auki hélt Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, erindi um horfur í efnahagsmálum með tilliti til tæknifyrirtækja. Allir þátttakendur í rannsókninni fengu svo senda samantekt niðurstaðna ársins 2006.

Í nóvember 2007 fengu fyrirtækin sem taka þátt í rannsókninni senda samantekt niðurstaðna ársins 2007. Niðurstöðurnar voru einnig kynntar fyrir fulltrúum iðnaðarráðuneytisins.

 Á myndinni eru f.v. Sveinn Þorgrímsson, skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu, Rögnvaldur J. Sæmundsson og Einar Karl Haraldsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra.

Um rannsóknina

Gagnasöfnun

Niðurstöður


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica