Upplifunarmiðuð frumkvöðlastarfsemi
Í gangi er rannsóknarverkefnið „Experiencing local food in the Nordic countries“ sem styrkt er af Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni og er samstarfsverkefni rannsakenda frá öllum Norðurlöndunum. Verkefnið gengur út á að rannsaka frumkvöðlastarfsemi við uppbyggingu hágæða veitingastaða og hvernig uppbygging þeirra hefur áhrif á svæðisbundinni þróun. Meðal viðfanga í rannsókninni eru veitingastaðirnir Friðrik V á Akureyri og Fjöruborðið á Stokkseyri.

