Kynntu þér námið
Fréttir

Fjölbreytt dagskrá Útvarps 101 frá stafræna Háskóladeginum í HR 2021
Þáttastjórnendur Útvarps 101 ræða við nemendur og starfsfólk Háskólans í Reykjavík um það fjölbreytta nám og aðstöðu sem HR hefur upp á á bjóða.

Mál- og raddtæknistofa hlýtur fimm styrki
Mál- og raddtæknistofa Háskólans í Reykjavík, sem er hluti af Gervigreindarsetri HR, hlaut nýlega fimm styrki til tveggja ára til að vinna að rannsóknar- og þróunarverkefnum á sviði gervigreindar, máltækni og samskiptum manns og tölvu.

Stóðu sig með glæsibrag í alþjóðlegum fjármála- og fjárfestingakeppnum
Nemendur Háskólans í Reykjavík luku nýlega þátttöku í tveimur mikilvægum alþjóðlegum keppnum, Rotman fjármálakeppninni í Kanada og BI raundæmakeppninni í Osló. Nemendurnir sem tóku þátt í hinni risastóru Rotman-keppni lentu í 21. sæti af 45. HR tók nú þátt í keppninni í þriðja sinn og hefur þurft að etja kappi við stærstu viðskiptaháskóla heims, eins og Harvard sem hefur tekið þátt í fjölda ára. Liðsmenn voru nemendur viðskiptadeildar og verkfræðideildar.

Efnahagslegt vægi verkefnastjórnunar skilgreint í fyrsta sinn
Verkfræðingafélag Íslands gaf nýlega út þrjár fræðigreinar um sögu verkefnastjórnunar hér á landi og framtíð hennar. Útgáfan markar tímamót því þar er í fyrsta sinn birt aðferð til að mæla efnahagslegt vægi verkefna á Íslandi. Það síðastnefnda var jafnframt efni erindis sem flutt var í síðustu viku á vef HR og Vísis.
Fleiri viðburðir
Saga íslensku stjórnarskrárinnar
Þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis
Ragnhildur Helgadóttir, prófessor og forseti samfélagssviðs HR, fjallar um sögu íslensku stjórnarskrárinnar í þriðjudagsfyrirlestri HR og Vísis
Um nýsköpun
Þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis
Marina Candi, forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar HR í nýsköpun og frumkvöðlafræðum, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis.
Prófaðu að stýra fyrirtæki!
Stjórnunarkeppni framhaldsskólanna er liður í því að vekja áhuga ungs fólks hér á landi á góðri og ábyrgri stjórnun.
Stjórnunarkeppni framhaldsskólanna, sem haldin er á vegum viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, er liður í því að vekja áhuga ungs fólks hér á landi á góðri og ábyrgri stjórnun.
Hagnýt atferlisgreining
Þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis
Berglind Sveinbjörnsdóttir, forstöðumaður náms í hagnýtri atferlisgreiningu, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis.
Stafræn meistaranámsvika
Kynningar á meistaranámi við HR
Vikuna 22.-26. mars verða haldnar rafrænar kynningar á meistaranámi við HR.
Fræðifólk í fókus

Deildarforsetar Háskólans í Reykjavík deila sögu sinni og reynslu
Það eru náttúrulega ekki til nein vandamál, það eru bara mismunandi lausnir.
MeiraDeildir við HR

Lagadeild
Áhersla er lögð á verkefnatengt nám og fjölbreyttar kennsluaðferðir. Rannsóknir eru meðal annars á sviðum réttarfars, mannréttinda, stjórnskipunarréttar, þjóða- og Evrópuréttar og sjóréttar.
Sjá nánar

Viðskiptadeild
Öflug tengsl við atvinnulífið, raunhæf verkefni og alþjóðleg sýn eru í hávegum höfð við deildina.
Sjá nánar
Tölvunarfræðideild
Lögð er áhersla á verklega þjálfun, frumkvæði og nýsköpun. Meðal helstu rannsóknasviða eru gervigreind, gagnasöfn, máltækni, notendaviðmót og fræðileg tölvunarfræði.
Sjá nánar
Verkfræðideild
Í náminu er blandað saman fræðilegri þekkingu og verkkunnáttu. Rannsóknasvið eru orkumál, heilbrigðisverkfræði, þjálfun, byggingarefni, verkefnastjórnun og ákvarðanataka, meðal annarra.
Sjá nánar
Sálfræðideild
Áhersla á öflug tengsl við atvinnulíf, raunhæf verkefni, alþjóðlega sýn og starfsnám veitir nemendum samkeppnisforskot.
Sjá nánar
Íþróttafræðideild
Lærðu að nýta nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings
Sjá nánar
Háskólagrunnur HR
Háskólagrunnur HR er góður undirbúningur fyrir háskólanám. Hægt er að ljúka Háskólagrunni á einu ári eða einu og hálfu ári. Einnig er hægt að stunda viðbótarnám við stúdentspróf.