Alþjóðleg samstarfsnet

Alþjóðleg samstarfsnet

HR tekur þátt í fjölda samstarfsneta sem hafa stefnumótandi áhrif á háskólamenntun á alþjóðavísu. Helstu samstarfsnet HR eru: 

EUA - Samtök Evrópskra háskóla

Í samtökunum eru evrópskir háskólar frá 47 löndum. Samtökin eru þau stærstu sinnar tegundar, með 850 meðlimi sem sameiginlega eru með 17 milljónir háskólanema. Samtökin eru mikilvægur samráðsvettvangur um nýjungar í háskólamenntun í Evrópu. Meðlimir samtakanna hafa tækifæri til að hafa áhrif á og þróa stefnu og stefnumótandi verkefni um háskólamenntun og rannsóknir. Þetta er gert m.a. í gegnum Bologna-ferlið og tengiliði hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Evrópuþingi og öðrum valdhöfum.

Samstarfsnet háskóla á Norðurslóðum

Háskólinn í Reykjavík er meðlimur í University of the Arctic (UArctic) – samstarfsneti háskóla og annarra stofnana á norðlægum slóðum. Samstarfsverkefni eru á sviðum rannsókna, menntunar og kynningu á möguleikunum í byggðum á Norðurslóðum. Stofnanir í samtökunum eru yfir 130 talsins í átta löndum. UArctic-samtökin eru ein þau stærstu í heiminum á sviði menntunar og rannsókna.

NORDTEK

HR er meðlimur í NORDTEK, samstarfsneti rektora og deildarforseta við tækniháskóla í Norðurlöndunum. Til að vera meðlimur þarf viðkomandi háskóli að bjóða námsbrautir í verkfræði á meistarastigi og doktorsmenntun á sviði tæknirannsókna. Núverandi meðlimir koma frá 24 háskólum og við þá eru yfir 100.000 nemendur, kennarar og vísindamenn.

Nordplus laganetið

Nordplus laganetið samanstendur af 22 skólum á Norðurlöndunum sem sérhæfa sig í lagakennslu á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Markmið samstarfsnetsins er að styðja fræðasamvinnu með starfsskiptum og með því að deila fróðleik milli landa. Það eflir samkennd Norðurlandabúa og skilning á menningarheimum mismunandi landa.



Var efnið hjálplegt? Nei