Stuðningsúrræði
Hvert get ég leitað hjálpar í kjölfar kynferðisofbeldis?
Höfuðborgarsvæðið
Kvennaathvarfið
- Sími: Skrifstofa: 561 3720
- Neyðarnúmer allan sólarhringinn: 561 1205
- Netfang: kvennaathvarf@kvennaathvarf.is
- Athvarf, fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna. Athvarfið er einnig fyrir konur sem hefur verið nauðgað.
- Símaráðgjöf allan sólarhringinn í síma 561 1205. Konur geta hringt og rætt mál sín og fengið stuðning og upplýsingar. Ókeypis viðtöl, þar sem konur geta komið og fengið stuðning og upplýsingar án þess að til dvalar komi. Nauðsynlegt er að hringja áður í síma 561 1205 og panta tíma í viðtal.
- Sjálfshjálparhópar starfa á vegum Kvennaathvarfsins, þar sem nokkrar konur hittast reglulega undir handleiðslu starfskonu athvarfsins. Nauðsynlegt er að koma í viðtal áður.
Stígamót
- Laugavegur 170, 105 Reykjavík
- Símanúmer : 562 6868 / 800 6868
- Netfang: stigamot@stigamot.is
- Þjónusta Stígamóta er fyrir fólk frá 18 ára aldri, bæði konur og karla. Flestir sem koma til Stígamóta eru brotaþolar kynferðisofbeldis, bæði í æsku og/eða á fullorðinsárum. Stígamót eru líka fyrir fjölskyldumeðlimi og aðra aðstandendur brotaþola.
Bjarkarhlíð
- Bjarkarhlíð við Bústaðarveg, 108 Reykjavík
- Símanúmer: 553 3000
- Netfang: bjarkarhlid@bjarkarhlid.is
- Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir fullorðna þolendur ofbeldis af öllum kynjum. Markmið Bjarkarhlíðar er að veita stuðning og ráðgjöf ásamt fræðslu og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, auk þess að gefa skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið. Þar gefst einstaklingum kostur á viðtölum og ráðgjöf hjá félagsráðgjöfum, lögreglu og lögfræðingum þeim að kostnaðarlausu og á þeirra forsendum.
Kvennaráðgjöfin
- Túngötu 14, 101 Reykjavík
- Sími: 552 1500
- Kvennaráðgjöfin er ókeypis lögfræði- og félagsráðgjöf fyrir konur. Opnunartímar eru þriðjudaga frá kl. 20:00 til 22:00 og fimmtudaga frá kl. 14:00 til 16:00. Megintilgangur starfseminnar er að veita konum stuðning og ráðgjöf, en Kvennaráðgjöfin er opin öllum konum og körlum og má hvort sem er koma eða hringja. Þjónustan er endurgjaldlaus og þurfa þeir sem leita til ráðgjafarinnar ekki að gefa upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar.
- Hjá Kvennaráðgjöfinni starfa lögfræðingar, félagsráðgjafar, laganemar og félagsráðgjarfanemar í sjálfboðavinnu. Alltaf er þörf nýrra sjálfboðaliða og leikur ekki vafi á því að reynslan af sjálfboðastörfum fyrir Kvennaráðgjöfina kemur bæði félagsráðgjafar- og laganemum til góða.
Heimilisfriður
- Sími : 555 3020
- Heimilisfriður (hét áður Karlar til ábyrgðar) er eina sérhæfða meðferðarúrræðið fyrir karla og konur sem beita ofbeldi á heimilum hér á landi. Um er að ræða einstaklings- og hópmeðferð hjá sálfræðingum.
- Mikilvægt er að rjúfa vítahring ofbeldis með því að styrkja meðferðarúrræði fyrir gerendur. Markmið verkefnisins er að veita körlum og konum sem beitt hafa heimilisofbeldi meðferð og aðstoð séu þeir reiðubúnir að leita sér hjálpar. Verkefnið er á ábyrgð Jafnréttisstofu og liður í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum. Verkefnið felur í sér einstaklings- og hópmeðferð fyrir karla og konur sem beita maka sína ofbeldi sem og stuðning við maka þeirra karla sem leita sér aðstoðar.
Drekaslóð
- Borgartúni 3, 2.hæð, 105 Reykjavík
- Símanúmer: 551 5511 / 860 3358
- Fræðslu- og þjónustumiðstöð fyrir þolendur alls kyns ofbeldis og aðstandendur þeirra. Þau bjóða upp á einstaklingsviðtöl, fjölbreytt hópastarf og ýmis konar fræðslu. Miðstöðin er fyrir fólk af öllum kynjum. Skrifstofan þeirra er opin alla virka daga frá 10:00 - 17:00.
Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar
- www.reykjavik.is/thjonustumidstodvar
- Sími: 411 1111
- Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar eru staðsettar í sex hverfum og sinna þjónustu ýmiss konar við einstaklinga og fjölskyldur. Þar er hægt að leita sér stuðnings ef um ofbeldistengd málefni eru að ræða, hvort sem það er á heimili eða utan þess. Stuðningurinn er í formi ráðgjafar ýmiss konar þar sem að þjónustumiðstöðvarnar veita meðal annars félags- og fjölskylduráðgjöf.
Landsbyggðin
Aflið
- Systursamtök Stígamóta á Akureyri.
- Brekkugötu 34, 600 Akureyri
- Símanúmer: 461 5959 / 857 5959
- Aflið er fyrir alla sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldi og aðstandendur þeirra, svo sem maka, foreldra, systkini og vini sem óska eftir ráðgjöf.
- Aflið er samtök sem voru stofnuð á Akureyri árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta þar sem í ljós kom mikil þörf fyrir samtök af þessu tagi. Starfsemin byggir á forsendum þolenda kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis.
- Þar sem um mjög viðkvæm og persónuleg mál er að ræða er lögð rík áhersla á að fyllsta trúnaðar og þagmælsku sé gætt um öll mál og þá einstaklinga sem þangað leita.
Sólstafir
- www.solstafir.is
- Systursamtök Stígamóta á Ísafirði.
- Túngötu 12, kjallara, 400 Ísafirði
- Sími: 846 7484
- Sólstafir eru óformleg grasrótarsamtök kvenna og starfshættir markast af því. Ábyrgð á daglegu starfi deila starfskonur jafnt. Starfskonur Sólstafa eru ekki sérfræðingar, sálfræðingar, geðlæknar eða félagsráðgjafar. Þær koma frá margvíslegum starfsstéttum og það sem tengir þær saman er reynsla þeirra sjálfra af kynferðisofbeldi.