Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
13. júní 2025

Öðlaðist meira sjálfstraust í náminu í Háskólagrunni

Ásta Karen Magnúsdóttir útskrifaðist frá Háskólagrunni síðastliðinn föstudag. Hún segir námið hafa verið frábæra reynslu, allt frá kennurum og stjórnendum í náminu sem hafi verið hvetjandi og gert mikið fyrir upplifun hennar af náminu, yfir í samnemendurna. Allt hafi þetta gert upplifunina eftirminnilega.

„Ég valdi að fara í Háskóalgrunn HR þar sem mér var bent á að það væri góður undirbúningur fyrir frekara háskólanám. Upphaflega stefndi ég á nám í geislafræði og þess vegna valdi ég tækni- og verkfræði grunninn, en með tímanum hefur stefnan mín færst yfir í lögreglufræði. Námið hjálpaði mér virkilega við að finna mitt áhugasvið og hvert ég vil stefna í framtíðinni,“ segir Ásta Karen.

Hún var að setjast aftur á skólabekk eftir þó nokkurn tíma og segir það hafa komið sér á óvart hvað það væri ótrúlega gaman að læra aftur.

„Einnig kom það mér líka á óvart hversu miklum stuðning ég hef fundið frá samferðafólki mínu og kennurum í gegnum allt. Það hefur skipt miklu máli fyrir upplifun mína á náminu.“

En hvað hefur staðið upp úr í náminu í Háskólagrunni?

„Það sem stendur upp úr er hvað námið hefur hjálpað mér að öðlast meira sjálfstraust. Ég var stressuð að fara aftur í nám en mér tókst það og það hefur verið ótrúlega styrkjandi,“ segir Ásta Karen.

Frá tíma í siðfræði í Háskólagrunni.

Sem valnámskeið í 4. lotu valdi hún siðfræði.

„Ég valdi siðfræðina sem mitt valnámskeið vegna þess að stefnan eftir Háskólagrunn er í lögreglufræði og tel að siðfræði muni nýtast mér á þeim vettvangi. Í siðfræðinni erum við að greina siðferðisleg álitamál og skoða helstu siðfræði kenningarnar. Námskeiðið hefur dýpkað þekkingu mína á hugtökum eins og réttlæti, ábyrgð og hvert er hlutverk okkar er sem einstaklingar og samfélag.“

Ásta Karen segir að nám í lögreglufræði hafi lengi verið draumur.

„Mig hefur alltaf langað að starfa við eitthvað sem skiptir máli fyrir samfélagið, þar sem ábyrgð, réttlæti og mannleg samskipti skipta máli. Námið í Háskólagrunninum hefur lagt traustan grunn og ég er sannfærð um að þetta sé rétta leiðin fyrir mig.“

13. júní 2025
Nýjustu fréttirnar