- PDF bæklingur - Tölvunarfræði
Nám í tölvunarfræði hentar þeim sem hafa áhuga á að hanna hugbúnað og vefsíður, þróa tölvuleiki, læra stærðfræði og forritun, vinna í sýndarveruleika og margt fleira. Tölvunarfræði er fjölbreytt og lifandi grein sem skarast á við ýmis önnur fræðasvið eins og sálfræði, verkfræði, lífupplýsingafræði og viðskiptafræði. Kunnátta í tölvunarfræði er undirstaða margþættrar starfsemi og nýrra fyrirtækja.
Nemendur geta valið 1-2 áherslusvið í lok fyrsta árs í náminu - ef þeir vilja.
BSc-námið í tölvunarfræði við HR hefur þá sérstöðu hér á landi að það hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun (ASIIN).
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík er sú stærsta sinnar tegundar á landinu og við hana starfa vísindamenn og kennarar sem eru í fremstu röð í sínu fagi. Þannig hafa fræðimenn tölvunarfræðideildar til dæmis hlotið hin virtu Kurzweil-verðlaun tvisvar sinnum og CADIA player, sigursælasta leikjavél sem gerð hefur verið með gervigreind í almennri leikjaspilun, var þróuð innan deildarinnar einnig hafa nokkrir starfsmenn deildarinnar hlotið heiðurinn Fellows of the European Association for Theoretical Computer Science og eru meðlimir Academia Europaea (the Academy of Europe). Helstu rannsóknarsvið tölvunarfræðideildar eru gervigreind, fræðileg tölvunarfræði og hugbúnaðar- og tölvukerfi.
Annað háskólanám metið til eininga
Sú færni og kunnátta sem nemendur öðlast með námi í tölvunarfræði nýtist mjög vel í bland við þekkingu sem nemendur hafa þegar aflað sér, jafnvel í greinum sem við fyrstu sýn virðast alls óskyldar tölvunarfræði. Tölvunarfræðideild vill hvetja sem flesta til að kanna hina fjölmörgu möguleika sem fagið veitir. Nemendur geta því fengið margvíslegt háskólanám sem þeir hafa lokið metið til eininga.
/sys/tur er félag kvenna í tölvunarfræði við HR.
Lokaverkefni nemenda í BSc-námi eru hópverkefni sem unnin eru í samstarfi við fyrirtæki. Undanfarin ár hafa nemendur unnið verkefni fyrir Icelandair, Advania, Isavia, Marel, Tempo, Netorku, Össur, Valitor, Neyðarlínuna og Landspítalann.
Nemendur geta sótt um að fara í starfsnám til hinnar virtu Fraunhofer-rannsóknarstofnunar, í Maryland í Bandaríkjunum. Við Fraunhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við ýmsar stofnanir og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu. Nemendur fá greidd laun meðan á starfsnáminu stendur. Starfsnámið getur verið metið til eininga.
CCP Games og Háskólinn í Reykjavík eru með samstarfssamning um rannsóknir og kennslu í tölvunarfræði. Hluti af þessum samningi er starfsnám nemenda í tölvunarfræði hjá fyrirtækinu.
Nemendur öðlast réttindi til að nota lögverndaða starfsheitið tölvunarfræðingur að loknu grunnnámi.
Útskrifaðir nemendur starfa meðal annars við greiningu og hönnun kerfa, vef- og viðmótshönnun, forritun, gæðaprófanir og fleira. Í BSc-námi við tölvunarfræðideild er lögð áhersla á raunhæf verkefni sem eru góð þjálfun fyrir slík störf að námi loknu.
Með því að ljúka meistaranámi (MSc) í framhaldi af grunnnámi (BSc) geta nemendur náð enn betra forskoti á vinnumarkaði, sérstaklega ef viðkomandi vill sinna stjórnunarstöðu.
Í háskólabyggingu HR er aðstaða til verklegrar kennslu, rannsókna, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.
HR stendur framarlega á heimsvísu í rannsóknum, meðal annars í gervigreind og fræðilegri tölvunarfræði.
Þeir nemendur sem gera verkefni og stunda rannsóknir með vísindamönnum Gervigreindarseturs HR, CADIA, hafa afnot af aðstöðu setursins fyrir tilraunir og sérstaka þróun í margmiðlunartilraunaherbergi sem kallað er Svartholið. Þar eru margskonar tæki sem nýta má í samskiptum fólks og tölva, eins og sýndarveruleikabúnaður (Oculus Rift og HTC Vive), risaskjár (3m x 2m), tölvusjón (Kinect), stefnuvirkir hljóðnemar, tölvustýrð LED-lýsing, hátalarakerfi og hljóðblandari svo að fátt eitt sé nefnt.
Þar er líka aðstaða fyrir hópavinnu nemenda og starfsmanna á öllum námsstigum. Þar eru borð (flestum úthlutað á hverri önn, en líka borð sem nemendur geta notað hluta vikunnar), geymsluaðstaða (skúffur, hillur, kassar), grunn tækjabúnaður (skjáir, snúrur o.s.frv.) og svo tússtöflur og afþreyingaraðstaða (sófi og leikjavélar).
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Nemendur í tölvunarfræði læra oft saman á ákveðnu svæði í Sólinni. Sjá fleiri myndir af aðstöðunni í HR.
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.
Nemendur í tölvunarfræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna og sérfræðinga á fagsviðinu, stundakennara og gestafyrirlesara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.
Meðal þeirra sem koma að kennslu í tölvunarfræði er fjöldi stundakennara sem færa atvinnulífið beint inn í skólastofunar og miðla fræðslu um verklag og verkefni sem þau eru að fást við hverju sinni.
PhD frá University West í Svíþjóð. Anna Sigríður vinnur að rannsóknum sem snúa að hönnun, þróun og notkun hugbúnaðar og hefur síðastliðin ár einnig unnið að rannsóknum sem snúa að áhrifum aukins flæði gagna á samfélagið.
Forstöðumaður grunnnáms í tölvunarfræði og hefur séð um samstarf deildarinnar við fyrirtæki og lokaverkefni.
Kári hefur um árabil kennt tölvugrafík, fengist við tölvuleikjagerð og stundað rannsóknir í gervigreind. Einnig hefur hann leiðbeint hópum í verklegum námskeiðum og lokaverkefnum, bæði almennum og rannsóknartengdum.
Sérfræðingur á sviði notendamiðaðrar hugbúnaðargerðar og kennir meðal annars námskeið um samskipti manns og tölvu.
Til að ljúka BSc í tölvunarfræði þarf að ljúka 180 ECTS einingum:
Hvert námskeið er 6 ECTS einingar, nema lokaverkefni sem er 12 ECTS einingar.
Dæmi um hvernig nám í staðarnámi er uppbyggt má sjá í meðfylgjandi töflu, en raða má námskeiðum á annan hátt ef undanfarareglum er fylgt.
Athugið að ef nemandi vill taka áherslulínu getur viðkomandi tekið áherslunámskeiðin hvenær sem er á námsferlinum svo lengi sem hann uppfyllir reglur um undanfara.
Skipulag fyrir nemendur sem innrituðust 2022 og síðar
1. ár - Haust | 1. ár - Vor |
---|---|
|
|
2. ár - Haust | 2. ár - Vor |
---|---|
|
|
3. ár - Haust | 3. ár - Vor |
---|---|
|
|
* Skylduáfangi hjá þeim sem innrituðust haustið 2016 og eftir það. Nemendur sem innrituðust fyrir haustið 2016 þurfa ekki að taka námskeiðið Nýsköpun og stofnun fyrirtækja.
1. ár - Haust | 1. ár - Vor |
---|---|
|
|
2. ár - Haust | 2. ár - Vor |
---|---|
|
|
3. ár - Haust | 3. ár - Vor |
---|---|
|
|
Nemendur taka 60 ECTS einingar í vali. Nemendur geta valið valnámskeið innan deildar eða utan deildar. Ef um val utan deildar er að ræða gildir eftirfarandi:
Athugið að:
Ekki er hægt að fá metna bæði Gagnavinnslu og Gagnasafnsfræði vegna skörunar.
Ekki er hægt að fá metin bæði Stýrikerfi og Grunnatriði stýrikerfa vegna skörunar.
Athugasemdir:
Athugið sérstaklega að námskeiðin Hagnýt stærðfræði 1 og Hagnýt tölfræði 1 (í viðskiptadeild) er ekki hægt að taka í vali vegna skörunar við skyldunámskeiðin Tölfræði I og Stærðfræði I.
Athugið að listinn er ekki tæmandi.
Tölvunarstærðfræði | Rannsóknarmiðuð tölvunarfræði |
---|---|
Gervigreind (Artificial Intelligence) Líkanagerð og sannprófun (Modeling and Verification) Málvinnsla (Natural Language Processing) Merkingafræði (Semantics) Reinforcement Learning Sýndarumhverfi (Virtual Environments) Tölvugrafík (Computer Graphics) Þýðendur (Compilers) Netafræði (Graph Theory) Computer Game Design & Development Vélrænt gagnanám (Introduction to Machine Learning) Samhliða og dreifð forritun ( Concurrent and Distributed Programming) | Gervigreind (Artificial Intelligence) Líkanagerð og sannprófun (Modeling and Verification) Málvinnsla (Natural Language Processing) Merkingafræði (Semantics) Reinforcement Learning Sýndarumhverfi (Virtual Environments) Tölvugrafík (Computer Graphics) Þýðendur (Compilers) Netafræði (Graph Theory) Computer Game Design & Development Vélrænt gagnanám (Introduction to Machine Learning) Samhliða og dreifð forritun ( Concurrent and Distributed Programming) Dulritun og talnafræði ( Cryptography and Number theory) |
Námskeið í verkfræðideild | Námskeið í verkfræðideild |
---|---|
Aðgerðagreining (Operations Research) Lífupplýsingafræði (Bioinformatics) Merkjafræði (Signal Processing) Stærðfræði III (Mathematics III) Sameinda- og frumulíffræði (Molecular Cell Biology) Tölfræði II (Statistics II) Töluleg greining (Numerical Analysis) Vitvélar (Machine Learning) Eðlisfræði I | Aðgerðagreining (Operations Research) Lífupplýsingafræði (Bioinformatics) Merkjafræði (Signal Processing) Stærðfræði III (Mathematics III) Sameinda- og frumulíffræði (Molecular Cell Biology) Tölfræði II (Statistics II) Töluleg greining (Numerical Analysis) Vitvélar (Machine Learning) Eðlisfræði I |
Hvert námskeið er 6 ECTS einingar, nema lokaverkefni sem er 12 ECTS einingar.
Valnámskeið haust - 12 vikna | Valnámskeið vor - 12 vikna |
---|---|
T-316-UPPL - Upplýsingaþjóðfélagið I-406-IERP – Hagnýt Viðskiptakerfi (ERP) T-302-HONN – Hönnun og smíði hugbúnaðar T-430-TOVH – Þróun opins vefhugbúnaðar T-504-ITML – Vélrænt gagnanám T-511-TGRA – Tölvugrafík T-513-CRNU – Dulritun og talnafræði T-514-VEFT – Vefþjónustur T-519-STOR – Stöðuvélar og reiknanleiki T-535-CPSY – Cyber Physical Systems T-603-THYD – Þýðendur T-622-UROP – Rannsóknarvinna grunnnáms T-423-ENOP – Verkfræðilegar bestunarferðir | T-201-LINC – Línulega algebra með tölvunarfræði T-218-ALCO – Algebra og fléttufræði T-622-ARTI – Gervigreind T-403-FORC – Forritun í C++ T-418-UPSS – Upplýsinga – og samskiptatækni í skólakerfinu T-419-CADP – Samhliða og dreifð forritun T-427-WEPO – Vefforritun II T-445-GRTH – Netafræði T-498-GAGR – Gagnagreining T-505-ROKF – Rökfræði í tölvunarfræði T-515-NOTH – Notendamiðuð hugbúnaðargerð T-533-VIHU – Viðhald hugbúnaðar T-604-HGRE – Hönnun og greining reiknirita T-618-STAR – Starfsnám BSc í tölvunarfræði T-622-ARTI - Gervigreind T-634-AGDD – Advanced game design and development T-631-SOE2 – Hugbúnaðarfræði II – prófanir T-634-AGDD – Advanced Game design and development T-636-SMAT – Samskipti manns og tölvu T-637-GEDE – Högun leikjavéla I-707-VGBI – Viðskiptagreind |
Valnámskeið haust - 3 vikna | Valnámskeið vor - 3 vikna |
---|---|
T-318-STTH – Stafræn Þjónustuhönnun T-402-STFO – Stærðfræðileg forritun T-417-TOOR – Tölvuöryggi T-488-MAPP – Þróun smáforrita T-542-HGOP – Hagnýt gæðastjórnun og prófanir T-624-CGDD – Hönnun og þróun tölvuleikja | T-219-REMO - Rauntímalíkön T-414-AFLV – Árangursrík forritun og lausn verkefna T-431-HANE – Hagnýt netkerfi |
Vinsamlegast athugið að sum fög geta verið skyldunámskeið á einni braut og valnámskeið á annarri.
Athugasemdir:
Námskeiðslýsingar er hægt að finna á heimasíðu Háskólans undir “upplýsingar fyrir nemendur”.
Mikilvægt er að skoða undanfara fyrir valnámskeið en þá er hægt að sjá í kennsluskrá
Vinsamlegast athugið að það getur komið fyrir að valnámskeið sé ekki kennt
Þegar námskeið eru tekin í vali utan tölvunarfræðideildar og verkfræðideildar ber að gæta þess að undanfarareglum viðkomandi deildar sé fylgt og að námsefni skarist ekki við aðrar einingar.
Undanfara má sjá í kennsluskrá: https://www.ru.is/namid/kennsluskra/ Nemendur sem hafa ekki lokið undanfara námskeiða mega eiga von á því að vera skráðir úr því án frekari viðvörunar enda er það á ábyrgð nemenda að undanfarar séu uppfylltir.
Samþykki Námsmatsnefndar þarf vegna námskeiða í öðrum deildum á sviði tölvunarfræði, upplýsingatækni eða stærðfræði.
Nemandi sem hefur lokið heildstæðu háskólanámi getur sótt um að fá það nám metið sem val, jafnvel þó það sé í óskyldri grein. Einnig geta nemendur fengið fyrra háskólanám metið í stað þess að ljúka skyldunámskeiði, ef það er samsvarandi þeim námskeiðum sem kennd eru í kjarna. Til að fá frekari upplýsingar um mat á fyrra námi, vinsamlega hafið samband við skrifstofu tölvunarfræðideildar. Allar beiðnir um mat á fyrra háskólanámi eru lagðar fyrir námsmatsnefnd.
Nemendur geta valið áherslusvið í lok fyrsta árs. Hægt er að velja 1-2 áherslusvið eða halda áfram í almennri tölvunarfræði. Nemendur þurfa að ljúka a.m.k. 30 ECTS einingum á áherslusviði til að geta útskrifast með viðkomandi áherslusvið. Hér er hægt að lesa nánar um áherslulínur. Áherslusviðin eru:
Nánari lýsingar á námskeiðum má finna í kennsluskrá.
Það er á ábyrgð nemanda að tilkynna til deildarinnar ef hann vill útskrifast af ákveðnu áherslusviði. Við lok þriðja námsárs senda nemendur tölvupóst á verkefnastjóra deildarinnar með upplýsingum um:
Almenningur fær að prófa tölvuleik eftir nemanda í tölvunarfræði á UTmessunni.
Lokaverkefni nemenda í tölvunarfræðideild eru tvenns konar, hefðbundin lokaverkefni og lokaverkefni með rannsóknaráherslu. Í hefðbundnum lokaverkefnum fá nemendur tækifæri til að vinna að raunverulegum hugbúnaðarverkefnum í nánum tengslum við atvinnulífið. Nemendur vinna í 2-4 manna hópum, undir leiðsögn verkefniskennara og fá aðstöðu hjá tilteknu fyrirtæki.
Frumkvæði að verkefnum hefur á undanförnum árum bæði komið frá fyrirtækjum og nemendum. Nemendur verða að hafa lokið a.m.k. 78 ECTS einingum og Verklegu námskeiði 2 og Hugbúnaðarfræði. Mælt er með að nemendur taki Lokaverkefni á 6. önn.
Nemendur skrifa greinargóða verkefnisskýrslu sem þeir leggja fram með hugbúnaðinum. Lokaverkefni er metið af verkefniskennara og tveimur prófdómurum frá HR. Verkefnisvinnunni lýkur formlega með opinni kynningu í skólanum.
Nánari upplýsingar um lokaverkefni má finna hér
Ground tester app
Samstarfsaðili: Icelandair
A Computer Game for Patient Education
Samstarfsaðili: Landspítalinn
Minjakort
Samstarfsaðili: Minjastofnun Íslands
Cloud Analytics
Samstarfsaðili: Marel - Innova
Quizup - Single Player Web App
Samstarfsaðili: Plain Vanilla
Dynamics AX og Internet of Things
Samstarfsaðili: Advania
Tempo Chrome Extension
Samstarfsaðili: Tempo ehf.
Raforkumarkaður á vefnum
Samstarfsaðili: Netorka
Til að hefja nám í tölvunarfræði þurfa umsækjendur að hafa lokið stúdentsprófi, lokaprófi úr Háskólagrunni eða sambærilegu prófi. Æskilegt er að nemendur hafi haldgóða þekkingu á stærðfræði. Við mat á umsóknum er tekið tillit til einkunna á stúdentsprófi, frekari menntunar, starfsreynslu ofl. Umsækjendur eru því hvattir til að gera grein fyrir öllu því sem þeir telja geta orðið umsókn sinni til framdráttar.
Allir umsækjendur verða að fylla út rafræna umsókn og fylgigögnum skal skila inn í umsóknarkerfið. Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:
Þeim nemendum sem vilja hefja nám í tölvunarfræði en vantar nauðsynlegan undirbúning, til dæmis í stærðfræði er bent á háskólagrunn HR sem er undirbúningsnám fyrir háskóla. Þar er hægt að velja strax áherslulínu fyrir tölvunarfræði.
Ef umsækjandi hefur lokið námskeiðum á háskólastigi er hægt að sækja um mat á fyrra námi til skrifstofu deildarinnar td@ru.is
Ég byrjaði í öðru námi þar sem við þurftum að taka nokkra tölvunarfræðikúrsa og ég fann að ég vildi gera meira af því. Í hugbúnaðarverkfræðinni fannst mér allir kúrsarnir skemmtilegir. Ég hugsaði með mér að kannski ætti ég bara að læra það sem mér finnst skemmtilegast.