Hafa samband
Almennar fyrirspurnir
Þjónustuborð í Sólinni svarar almennum fyrirspurnum og reynir að greiða úr þeim erindum sem þar eiga heima. Ef fyrirspurnin á heima annars staðar, er erindið sent til réttra aðila.
Sími: 599 6200
Netfang: thd@ru.is
Staðfestingar, kvittanir og vottorð
Á þjónustuborði í Sólinni eru afgreidd:
- Vottorð vegna samskipta við LÍN, Vinnumálastofnun, Fæðingarorlofssjóð og stéttarfélög
- Kvittanir fyrir skólagjöldum
Sími: 599 6200
Netfang: nemendabokhald@ru.is
Skólagjöld
Upplýsingar um skólagjöld eru á vef HR. Sé frekari aðstoðar óskað varðandi greiðslu skólagjalda vinsamlega hafið samband við innheimtudeild með tölvupósti á netfangið innheimta@ru.is.
Ráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafar veita upplýsingar um námið við HR og aðstoða einstaklinga við að ná árangri í námi, átta sig á áhuga sínum og styrkleikum.
- Opnir viðtalstímar náms- og starfsráðgjafa eru alla virka daga nema föstudaga kl. 13.30 - 15:30.
- Ekki þarf að bóka tíma í opna viðtalstíma.
- Ef þið komist ekki á þessum tíma þá vinsamlegast hafið samband við náms- og starfsráðgjöf til að bóka viðtal á öðrum tíma: namsradgjof@ru.is.
Náms- og starfsráðgjöf HR er við afgreiðsluna á 1. hæð í Sólinni.
Sálfræðiþjónusta
Nemendur sem hafa áhuga á að nýta sér sálfræðiþjónustu geta sent tölvupóst til: salfraedithjonusta@ru.is eða leitað til náms- og starfsráðgjafar HR sem mun vísa þeim sem taldir eru þurfa eða vilja fá sálfræðiþjónustu í viðtal hjá sálfræðingi.
Styrkir
Upplýsingar um styrki.
Umsóknir
Upplýsingar um umsóknafrest eru á vef HR. Skrifstofur deilda svara spurningum um stöðu einstakra umsókna. Sótt er um á sérstökum umsóknarvef .
Upplýsingar um námið
Hægt er að lesa ítarlegar upplýsingar um námsbrautir sem eru í boði á vef HR. Ef þú finnur ekki upplýsingarnar sem þú leitar að getur þú haft samband við skrifstofustjóra deildarinnar sem þú hefur áhuga á að stunda nám við.
Deildir ofl.
Hafðu samband við: lagadeild, viðskiptadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild, frumgreinadeild, Opna háskólann í HR, Skema, MBA námið, MPM námið.
Húsnæði
Háskólinn sér ekki um að útvega nemendum húsnæði en bendir nemendum á Vísi, Mbl, Bland og hinar ýmsu leigu-grúppur á Facebook.
Prentkvóti og aðgangskort
Prentkvóti er seldur á þjónustuborði í Sólinni og þar er einnig hægt nálgast aðgangskort.
Sími: 599 6200
Netfang: thd@ru.is
Sala á fjölritum frá kennurum
Þjónustuborðið í Sólinni selur fjölrit.
Sími: 599 6200
Netfang: thd@ru.is
Tæknileg aðstoð: vefpóstur, myschool ofl.
Hjálparvefur upplýsingatæknisviðs hefur að geyma mikið af hjálplegum tæknileiðbeiningum. Einnig er hægt að senda tölvupóst á help@ru.is
Vefur HR
Ef þú sérð ekki það sem þú ert að leita að, vinsamlega sendu vefstjóra fyrirspurn: vefstjori@ru.is
Einnig er hægt að smella á "Var efnið hjálplegt" neðst á öllum síðum. Gott er að skrifa nokkur orð um erindið.