Fréttir
Dagur verkefnastjórnunar haldinn hátíðlegur
Dagur verkefnastjórnunar og útskriftarráðstefna MPM-nema verður haldin 20. maí í Háskólanum í Reykjavík.
Dagur verkefnastjórnunar og útskriftarráðstefna MPM-nema verður haldin 20. maí í Háskólanum í Reykjavík. Þar verða útskriftarnemendur í aðalhlutverki en þeir kynna lokaverkefni sín sem endurspegla sérsvið viðkomandi og stefnu. Um er að ræða rannsóknarverkefni sem oftar en ekki eru unnin í beinum tengslum við atvinnulífið og spanna þannig vítt svið verkefnastjórnunar, hvert á sinn máta.
Útskriftarráðstefna MPM-námsins verður haldin 20. maí 2022 kl. 12:30-17:15 í stofu V101 og M101.