Háðu harða baráttu í forritun
Alþjóðlega háskólakeppnin NWERC í forritun fór fram um helgina. Keppnin átti að fara fram í Háskólanum í Reykjavík í ár en vegna aðstæðna út af Covid-19 fór hún fram á netinu. NWERC er svæðiskeppni Norður-Evrópu fyrir ICPC heimskeppnina þar sem nemendur frá öllum heimshlutum keppa sín á milli í forritun.
Keppnin átti að fara fram í Háskólanum í Reykjavík í ár en vegna aðstæðna út af Covid-19 fór hún fram á netinu.
Keppninni var stýrt frá HR og dómarar voru staddir þar og pössuðu upp á að öllum reglum væri fylgt. Þeir sáu líka um að svara spurningum keppenda og kynna lausnirnar á dæmum að keppninni lokinni. Í NWERC-keppninni mættust alls 134 lið frá háskólum í Belgíu, Lúxemborg, Bretlandi, Írlandi, Íslandi, Eistlandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Þýskalandi, Hollandi og Litháen. Liðin háðu harða baráttu í að leysa stærðfræði- og reikniritaþrautir með forritun og höfðu 5 klukkustundir til að leysa eins mörg dæmi og þau gátu. Þrír keppendur voru í hverju liði en með þjálfurum og sjálfboðaliðum voru þetta í heildina um 500 þátttakendur,
segir Unnar Freyr Erlendsson mótsstjóri.
Cambridge háskóli sigraði í keppninni. Oxford háskóli varð í öðru sæti og Technical University Munchen í þriðja sæti. Lið HR lenti í 46. sæti af 134 liðum. Efstu liðin komast áfram í ICPC heimskeppnina sem haldin verður í Bangladesh í nóvember 2022.
Þarna voru margir mjög öflugir forritarar að keppa og þeir eiga mikla möguleika á að komast í góð störf í framtíðinni m.a. eftir að hafa tekið þátt í þessari keppni,
segir Unnar en hann tók þátt í keppninni þrjú ár í röð árin 2016, 2017 og 2018.
Þessi keppni hjálpaði mér mjög mikið með atvinnutækifæri. Ég fór að starfa hjá Google í kjölfarið,
segir Unnar en hann stundaði nám í tölvunarstærðfræði í HR og lauk síðan mastersnámi í tölvunarfræði þaðan 2019.
NWERC háskólakeppnin í forritun hefur verið haldin síðan 1989 og HR hefur tekið þátt í henni síðan 2012. Besti árangur HR í keppninni var 5. sætið 2016.