Halldór Guðfinnur Svavarsson verður prófessor við tækni- og verkfræðideild
Dr. Halldór Guðfinnur Svavarsson hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Hann heldur opinn framgangsfyrirlestur í HR á morgun, föstudaginn 24. ágúst kl. 15:00 í stofu M103. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og ber titilinn: „About small things“. Í honum mun Halldór greina á almennum nótum frá viðfangsefnum rannsókna sinna undanfarin ár.
Undanfarinn áratug hafa meginrannsóknarviðfangsefni Halldórs verið þróun nýrrar kynslóðar sólarsella og ljósnema með því að móta efnisbyggingu þeirra á örsmæðar stærðarkvarða. Einnig hefur Halldór stundað rannsóknir á blá-grænum örþörungum við Bláa Lónið og á jarðsjó þess.
Halldór lauk BSc-prófi í efnafræði frá Háskóla Íslands árið 1992, MSc-prófi í efnisverkfræði frá Tækniháskólanum í Finnlandi árið 1996 og doktorsnámi í eðlisfræði frá Háskóla Íslands 2003. Að námi loknu starfaði Halldór á Rannsóknastofnun Byggingariðnaðarins en réðst til tækni- og verkfræðideildar HR árið 2006. Þar hefur hann m.a. sinnt kennslu í efnafræði og efnisfræði. Frá árinu 2013 hefur hann gegnt stöðu forstöðumaðumanns rannsóknaráðs deildarinnar.
Lesa meira um fyrirlestur Halldórs