Fréttir eftir árum


Forsíðufréttir

Háskólinn í Reykjavík býður landsmönnum að læra nýsköpun á netinu

18.5.2020

Allt námsefni í námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja er komið út á vef Háskólans í Reykjavík, hr.is. Þar með geta allir landsmenn færst skrefi nær því að vera frumkvöðlar.

Námsefnið fjallar um hvernig þróa á hugmynd að nýrri vöru eða þjónustu, gera fjárhagsáætlun, fara í gegnum hönnunarsprett, prófa vöruna og fjármagna hana. Á síðunni er hægt að horfa á kennslustundir og viðtöl við fremstu frumkvöðla landsins. Þar er einnig bent á fjölbreytt fræðsluefni á netinu sem nýtist frumkvöðlum.

Háskólinn í Reykjavík býður landsmönnum að læra nýsköpun á netinu

Hópurinn á bak við viðskiptahugmyndina sem bar sigur úr býtum í Nýsköpun og stofnun fyrirtækja árið 2020. Námskeiðið var kennt á netinu þetta árið.

 

Á föstudaginn var, 15. maí, lauk þriggja vikna námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja sem flestir nemendur HR í lok vorannar á fyrsta ári. 112 hópar nemenda, sem koma úr öllum deildum þróuðu jafnmargar nýsköpunarhugmyndir. Það má því segja að námskeiðið hafi verið stærsta, eða fjölmennasta, nýsköpunarátak landsins.

Reynslumiklir leiðbeinendur

Aðalleiðbeinandi námskeiðsins var Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull og stjórnandi. Hann býr yfir dýrmætri þekkingu og reynslu eftir störf í Kísildalnum í Kaliforníu til dæmis hjá Apple og Google. Með honum voru Hrefna S. Briem, sem hefur yfirumsjón með námskeiðinu og aðrir reynslumiklir leiðbeinendur: þau Svava Björk Ólafsdóttir, ein af stofnendum RATA, Ellen Ragnars Sverrisdóttir, ein af stofnendum Female Founder og Vignir Örn Guðmundsson, þróunarstjóri hjá CCP.

 

Gestir

Gestir Guðmundar í kennslustundum voru meðal annarra: Davíð Helgason, stofnandi Unity, Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, Stefanía Ólafsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Avo, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Kara Connect, Georg Lúðvíksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Meniga og Jake Knapp, höfundur Sprint.

 

Verðlaunahugmyndirnar fjórar

Í lok námskeiðsins voru þrjár bestu hugmyndirnar valdar en þær þurfa að hafa verið útfærðar með góðri viðskiptaáætlun og notendaprófunum. Hópurinn í fyrsta sæti hlýtur að verðlaunum kr. 300.000.- sem nýta má til að þróa hugmyndina áfram, auk þess að hljóta Guðfinnuverðlaunin svokölluðu og verða fulltrúi HR í alþjóðlegri frumkvöðlakeppni háskólanema.

1. Sæti: App fyrir læknismeðferð
Í
fyrsta sæti árið 2020 var nemendahópurinn á bak við Healie, hugbúnað sem tekur saman mikilvæga þætti í sjúkdómsmeðferð og heldur t.d. utan um lyf, einkenni, mataræði, svefn, hreyfingu og lífsmörk. Hægt er að tengja hugbúnaðinn við snjalltæki eins og heilsuúr og fá þannig enn betri raungögn.

2. sæti: Styttri skjátíma barna
Í öðru sæti var forritið Geisli fyrir snjalltæki og leikjatölvur þar sem foreldrar geta sett fram verkefni fyrir börnin sín hvort sem það eru heimilisstörf, heimaverkefni eða önnur verkefni. Geisli takmarkar virkni tækja þar til að barnið klárar verkefni dagsins og að launum fær það ákveðið magn af skjátíma til afþreyingar.

3. sæti: Betri endurvinnsluílát fyrir heimilin
Í þriðja sæti var hópurinn á bak við Gaia sem settu fram nýja lausn fyrir flokkun á heimilium. Hjá Gaia pantar viðskiptavinurinn fyrsta flokks endurvinnslutunnur eftir sínum þörfum sem passar fyrir heimilið, neyslu þess og rými til afnota. Hægt er að stækka „endurvinnsluhornið” í gegnum vef fyrirtækisins og bæta endurvinnslueiningum við þá tunnu sem er til fyrir.

4. sæti: Iðnvottuð NFC pilla á vinnuvélar sem má lesa með farsíma eða spjaldtölvu
Hópurinn í fjórða sæti þróaði hugmynd að UteamUP Horizon, forriti sem sameinar mikilvæga verkferla til að halda vélbúnaði í hámarks nýtingu, lágmarka bilanatíma og stuðla að fyrirbyggjandi viðhaldi. Það sem UteamUp bætir við önnur viðhaldsforrit er m.a. iðnvottuð NFC pilla sem er fest á vélina og lesin af IOS eða Android með síma eða spjaldtölvu. Viðhaldsaðilar hafa þannig auðvelt aðgengi að margskonar upplýsingum um viðkomandi tæki, svo sem rafmagns- og varahlutateikningar, fyrirliggjandi viðhaldsbeiðnir, áætlað viðhald og lagerstöðu fyrir viðkomandi varahluti.