HR einn af hundrað bestu ungu háskólum heims
Háskólinn í Reykjavík er einn af hundrað bestu ungu háskólum í heiminum í dag, samkvæmt lista Times Higher Education sem birtur var í gær.
Á listanum eru háskólar 50 ára og yngri og er Háskólinn í Reykjavík í 89. sæti á listanum.
Listi Times Higher Education byggir á mati á þrettán lykilþáttum háskólastarfs, svo sem á gæðum kennslu og rannsókna, fjölda tilvitnana í vísindagreinar eftir starfsmenn háskólans, alþjóðlegum tengslum og samstarfi við atvinnulífið.
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík er að vonum ánægður með árangurinn. "Þetta er frábær niðurstaða og meiriháttar alþjóðleg viðurkenning á gæðum starfs okkar í HR. Starfsmenn, nemendur og allir sem lagt hafa sitt af mörkum mega vera mjög stoltir af því hversu langt við höfum náð á skömmum tíma. Frá stofnun HR hefur áhersla verið lögð á góða kennslu og öflugt samstarf við atvinnulífið og síðan voru byggðar upp öflugar alþjóðlegar rannsóknir við háskólann. Á bak við þessa viðurkenningu er því mikil vinna og uppbygging og í henni felst hvati til að halda áfram að efla háskólann og sinna nemendum, atvinnulífinu, íslensku samfélagi og alþjóðlegu vísindastarfi ennþá betur."
Háskólinn í Reykjavík var stofnaður 1998 á grunni Tölvuháskóla Verzlunarskóla Íslands. Árið 2005 sameinaðist hann Tækniháskóla Íslands, sem hét Tækniskóli Íslands þar til hann var færður á háskólastig árið 2002. Við Háskólann í Reykjavík starfa um 250 manns, auk fjölda stundakennara. Um 3600 nemendur stunda nám við háskólann.