Fréttir
HR framlengir umsóknarfresti um nám
Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfresti um nám við Háskólann í Reykjavík fyrir haustönn 2020. Nýr umsóknarfrestur fyrir grunnnám er 15. júní, í stað 5. júní og nýr umsóknarfrestur fyrir framhaldsnám er 20. maí, í stað 30. apríl. Umsóknarfrestur í Háskólagrunn HR er til 22. júní.
Þessi ákvörðun er tekin í samráði allra háskóla landsins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Markmiðið er að koma til móts við þarfi samfélagsins á yfirstandandi óvissutímum og auka og auðvelda aðgengi fólks að háskólamenntun.