Nemendur HR markaðssetja sjófrystan ufsa á Bandaríkjamarkað
Nemendur Háskólans í Reykjavík leita nú leiða til að auka útflutning á sjófrystum ufsa til Bandaríkjanna, en Hnakkaþon 2018, útflutningskeppni HR og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hófst í dag. Áskorun Hnakkaþonsins í ár felst í að finna leiðir til að auka sölu á sjófrystum ufsa til hótela og veitingahúsakeðja í Bandaríkjunum.
Útflutningur á sjófrystum ufsa til Bandaríkjanna hefur dregist mikið saman undanfarna tvo áratugi. Árið 1999 nam hann yfir 2500 tonnum en í fyrra voru aðeins flutt út um 400 tonn. Ein ástæða þess að ufsinn, sem er mjög góður matfiskur, hefur ekki náð fótfestu á neytendamarkaði, er að flökin eru ekki jafn hvít og flök þorsks eða ýsu. Eftir eldun er ufsinn hins vegar mjög hvítur og hann hentar því vel til sölu til hótela og veitingahúsa. Í dag er sjófrystur ufsi aðallega seldur til hótel- og veitingahúsakeðja í Evrópu, til dæmis á Spáni og í Tyrklandi. Úrlausnir geta falið í sér nýjar leiðir í flutningi á markað, þróun sjófrystra afurða, nýjar leiðir við sölu og markaðssetningu, ný markaðssvæði innan Bandaríkjanna eða þróun umbúða. Verkefnið var þróað með Brimi hf., Eimskip og Samhentum.
Liðin hlýddu á fyrirlestra um markaðssetningu og sjávarútveg.
Hnakkaþonið er nú haldið í fjórða sinn. 30 nemendur HR eru skráðir í keppnina, í sex liðum. Það er til mikils að vinna því Icelandair Group og sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi bjóða sigurliðinu í fimm daga ferð til Boston, á sjávarútvegssýninguna Seafood Expo North America, í mars. Vinningslið Hnakkaþonsins 2018 verður kynnt á verðlaunaathöfn í HR á laugardaginn kl. 16:00.
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri tengsla í HR, útskýrir fyrirkomulag keppninnar.
Einvalalið sérfræðinga skipar dómnefnd Hnakkaþonsins 2018: Björgólfur Jóhannesson forstjóri Icelandair Group, Bylgja Hauksdóttir umboðsaðili North Coast Seafoods Ltd., Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips, Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri tengsla í HR, Karl Már Einarsson útgerðarstjóri Brims og Þorgeir Pálsson aðjúnkt við viðskiptadeild HR.
Íslenskur sjávarútvegur er margþætt atvinnugrein sem kallar á mikla þekkingu og sérhæft starfsfólk. Meðal viðfangsefna hans eru fiskveiðar, matvælavinnsla, markaðssetning, nýsköpun og tækniþróun, flutningar, rannsóknir, umhverfismál og margt fleira. Markmiðið með Hnakkaþoninu er að kynna þau ótalmörgu tækifæri til nýsköpunar og fjölbreyttu störf sem íslenskur sjávarútvegur býður upp á og kalla fram nýjar og frískar hugmyndir frá nemendum HR. Þá er eitt af meginmarkmiðum Hnakkaþonsins að minna nemendur á að arðbærni og góð umgengni um náttúruna verða að fara saman ef atvinnustarfsemi á að vera sjálfbær.
Hnakkaþonið er einnig liður í áherslu Háskólans í Reykjavík á raunhæf verkefni í námi, í samvinnu við íslenskt atvinnulíf.
Frekari upplýsingar um dagskrá er að finna á vefsíðu HR.