Fréttir
Auglýst eftir verkefnastjóra BSc-náms í viðskiptafræði
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík leitar að kraftmiklum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf verkefnastjóra BSc-náms í viðskiptafræði. Starfið felst fyrst og fremst í samskiptum og þjónustu við nemendur og kennara námsbrautarinnar.
• Þjónusta og samskipti við nemendur og kennara.
• Umsjón með ýmis konar gagnaöflun og samantekt tölulegra upplýsinga.
• Utanumhald umsókna, forsetalista, bókalista og skráningu námskeiða.
• Aðstoð við kynningu á náminu, t.a.m. með þátttöku í nýnemadögum, Háskóladeginum og umsjón með vef viðskiptadeildar.
Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi. Starfið veitir ýmis tækifæri til að sýna frumkvæði með það að markmiði að skapa framúrskarandi náms- og vinnuumhverfi fyrir nemendur.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólapróf, gjarnan viðskiptafræði.
• Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Mikil skipulagshæfni.
• Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi.
• Fagmennska og vilji til að veita frábæra þjónustu.
• Mjög góð enskukunnátta er skilyrði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Ragna Hreinsdóttir (gudrunragna@ru.is), skrifstofustjóri viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík.
Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, hér að neðan, fyrir 14. janúar 2014. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.