Nemendur á forsetalista fá viðurkenningar
Þeim nemendum sem komust á forsetalista fyrir haustönn 2013 voru afhentar viðurkenningar í gær, fimmtudag. Nemendur sem bestum árangri ná á hverri önn eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.
Við athöfnina flutti rektor HR, dr. Ari Kristinn Jónsson, ávarp. Deildarforsetar fjögurra deilda háskólans, viðskiptadeild, tölvunarfræðideild, lagadeild og tækni- og verkfræðideild, kynntu því næst þá nemendur sem eru á forsetalista fyrir námsárangur á haustönn 2013 og afhentu þeim viðurkenningarskjöl. Einnig voru veittir styrkir fyrir góðan námsárangur í frumgreinadeild.
Myndir frá athöfninni má sjá á facebook-síðu HR
Andri Þór Skúlason, nemi á fyrsta ári í viðskiptafræði, flutti ávarp nemenda.
Hópurinn sem fékk viðurkenningar í gær.