Kynningarfundur um MPM meistaranám í verkefnastjórnun við HR

Rafrænn kynningarfundur um MPM meistaranám í verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík

  • 19.4.2022, 12:00 - 13:00

Rafrænn kynningarfundur um MPM meistaranám í verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík verður haldinn í hádeginu þriðjudaginn 19. apríl kl. 12-13.

Fundurinn verður haldinn á zoom.

Fundarhlekkur: https://eu01web.zoom.us/j/68629295420
Skráning fer fram hér.

Haukur Ingi Jónasson formaður stjórnar MPM-námsins og Helgi Þór Ingason forstöðumaður námsins segja frá náminu, fyrirkomulagi þess og innihaldi, möguleikum útskrifaðra nemenda, gæðakröfum og alþjóðlegum viðmiðum.

Nemendur segja frá reynslu sinni af náminu og hvaða tækifæri það hefur haft í för með sér.

------------

Opið er fyrir umsóknir til 30. apríl á https://www.ru.is/mpm

MPM-námið er meistaranám í verkefnastjórnun sem hentar þeim sem vilja koma hlutum í verk og stýra flóknum verkefnum, hvort sem það er á sviði vöruþróunar, verklegra framkvæmda, nýsköpunar, innleiðingar, breytinga, rannsókna eða menningarviðburða.

Námið er 90 ECTS einingar og er alþjóðlega vottað. Það er skipulagt sem nám samhliða vinnu og tekur tvö ár. Frá fyrsta degi læra nemendur aðferðir sem nýtast í starfi og á meðan á náminu stendur öðlast þeir traustan fræðilegan grunn og eiga þess jafnframt kost að taka virkan þátt í þróun og útbreiðslu faglegra stjórnunaraðferða.

Vaxandi fjöldi fyrirtækja og stofnana tekur meðvitaða ákvörðun um að halda utan um þorra viðfangsefna sinna með aðferðum verkefnastjórnunar. Ástæðurnar fyrir þessu eru margar, ekki síst hraði breytinga í krefjandi samkeppnisumhverfi og þörfin fyrir það að geta lagað sig að síbreytilegu umhverfi og mætt kröfum viðskiptavina. Aðferðir sem kenndar eru í MPM-námi mæta því aukinni alþjóðlegri eftirspurn á öllum sviðum athafnalífsins. Flest bendir til að þessi þróun í átt að verkefnamiðun fyrirtækja haldi áfram og nú er talað um verkefnamiðun samfélaga, þegar heilu samfélögin gerast verkefnamiðuð og auka þannig getu sína til að takast á við flókin viðfangsefni og takast á við breytingar.



Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið: personuvernd@ru.is
//
Please note that at events hosted at Reykjavik University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on our ru.is or send an e-mail: personuvernd@ru.is