Viðburðir eftir árum


Stelpur og tækni 2020

Dagurinn verður haldinn í sjöunda sinn á Íslandi þann 20. maí.

  • 20.5.2020, 9:30 - 12:30

Stelpur og tækni dagurinn (Girls in ICT Day) verður haldinn í sjöunda sinn á Íslandi þann 20. maí næstkomandi. Dagurinn er haldinn víða um heim af ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna. 

Í ár þurfum við að aðlaga okkur að breyttum aðstæðum í samfélaginu og ætlum við því að hafa daginn „online“ í þetta sinn. Það jákvæða við það er að nú getum við boðið öllu landinu að vera með.

Hugmyndin með deginum er að kynna ýmsa möguleika í tækninámi sérstaklega fyrir stelpum í 9. bekk grunnskóla og opna þannig augu þeirra fyrir þeim framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar bjóða.

Við byrjum á sameiginlegri dagskrá sem verður streymt til allra þátttökuskólanna, að henni lokinni verður boðið upp á tvær vinnustofur. Fyrri vinnustofan verður einföld vefsíðuforritun í Wordpress og sú seinni tónlistarforritun í Sonic pi.
Gert er ráð fyrir að dagskráin vari frá kl 9:30 til 12:30 ca.

Til að skrá skóla í Stelpur & tækni 2020 er nóg að senda tölvupóst á vidburdir@ru.is fyrir 11. maí nk.



Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið: personuvernd@ru.is
//
Please note that at events hosted at Reykjavik University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on our ru.is or send an e-mail: personuvernd@ru.is