Félagslíf
Það er öflugt félagslíf í Háskólanum í Reykjavík. Nemendur mynda náið samfélag og kynnast sín á milli um leið og námið hefst, bæði í gegnum viðburði hjá nemendafélögum og í gegnum námið sjálft.
Auðvelt að kynnast
Viðburðir
Fljótlega eftir nýnemadaginn skipuleggja öll
nemendafélögin útilegu sem veitir nemendum gott tækifæri til að kynnast
samnemendum sínum á fyrstu dögum skólans.
Nemendafélög deilda sjá um að halda flesta viðburði og það er á þeirra könnu að skipuleggja fjöldamargar vísindaferðir í fyrirtæki, oft á hverjum föstudegi. Vísindaferðirnar gefa nemendum sýn á vinnumarkaðinn og möguleg framtíðarstörf, auk þess að vera góður vettvangur til að hrista hópinn saman.
Nemendafélögin skipuleggja líka skíðaferðir, aðrar ferðir innanlands, málfundi, próflokafögnuði, nýnemadjamm, keppnir við nemendafélög í öðrum háskólum og fleira. Það er haldin stór árshátíð fyrir alla nemendur á hverju ári, en auk þess heldur hvert nemendafélag sína árshátíð.
Nemendafélögin
- Tvíund fyrir nemendur í tölvunarfræðideild: facebook
- Pragma fyrir nemendur í verkfræði: vefsíða / facebook
- Lögrétta fyrir nemendur í lögfræði: vefsíða / facebook
- Markaðsráð fyrir nemendur í viðskiptafræði: vefsíða / facebook
- Mentes fyrir nemendur í sálfræði: facebook-hópur / facebook
- Atlas fyrir nemendur í íþróttafræði: facebook
Námið
Í flestum brautum
er takmarkaður fjöldi nemenda og það er þó nokkuð um hópverkefni í náminu. Þetta eykur samskipti milli nemenda, bæði innan námskeiða og þvert á allar deildir. Strax á fyrsta árinu er nemendum úr öllum deildum skipað handahófskennt í hópa sem þurfa að leggja fram viðskiptahugmynd á þremur vikum í námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja. Nemendur í
tækni- og verkfræðideild verða að snúa bökum saman strax á fyrstu önninni og leysa viðamikið verkefni á þremur dögum.
Nefndir
Nemendur geta tekið
þátt í nefndarstarfi innan Stúdentafélagsins . Með því móti kynnast þeir nemendum úr öðrum deildum og öðlast góða reynslu af meðal annars skipulagningu viðburða. Nefndirnar eru árshátíðarnefnd, Birta - félag um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni, jafnréttisfélag , góðgerðarnefnd , málfundafélag , háskólablaðið og viðburðanefnd . Háskólinn í Reykjavík er aðili að Landssamtökum stúdenta (LÍS) og eru nokkrir nemendur HR í framkvæmdastjórn samtakanna. LÍS er öflugur baráttuvettvangur fyrir ýmis hagsmunamál íslenskra háskólanema.
„Mæli með því að mæta á allt“
„Ég þekkti engann þegar ég byrjaði í HR en var
fljót að kynnast samnemendum. Bekkirnir eru litlir og strax á fyrstu dögum
skólans stóð nemendafélagið fyrir nýnemadegi sem var það sem þurfti til að
brjóta ísinn.
Með því að taka þátt í félagslífinu, t.d. vísindaferðum og þess háttar kynntist ég meira og minna öllum í bekknum á frekar stuttum tíma. Einnig voru hópverkefni í byrjun annar sem „neyðir“ mann til að finna samnemendur til að vinna með. Ég mæli með því að mæta á allt, sérstaklega til að byrja með því þannig kynnist maður sem flestum.“
Sonja Björk Jóhanssdóttir, fyrrverandi formaður SFHR
Á árshátíð Tvíundar.
Sálfræðinemar í námsferð í New York.