Fara á umsóknarvef

FOR 3A05

Lýsing

Undirstöðuatriði í forritun í Python. Breytur og virkjar, úttak og inntak, stýriskipanir og forritsflæði, lykkjur, listar, og uppflettitöflur, strengir, skráarvinnsla, föll og klasar.

Námsmarkmið

Nemandinn skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á eftirfarandi sviðum:

Þekking

  • Geti útskýrt hvað eru breytur og tög breyta
  • Geti lýst hvernig if setningar og lykkjur eru notaðar til að skilgreina flæði í forriti
  • Geti lýst kostum þess að brjóta forrit niður í föll
  • Skilið muninn á yfirlýsingu (skilum) og útfærslu falla.

Leikni

  • Notað samþætt þróunarumhverfi (IDE)  til að þróa og þýða forrit
  • Útfært, prófað, aflúsað, breytt og útskýrt forrit sem notar eftirfarandi grunneiningar í forritun: breytur, tög, segðir og gildisveitingar, einfalt inntak/úttak, skilyrðissetningar,
  • endurtekningar, listar, föll og strengi.
  • Valið viðeigandi skilyrðissetningar og endurtekningar fyrir tiltekið verkefni

Hæfni

  • Hannað og þróað forrit fyrir einfalt vandamál sem lýst er á almennan hátt

Lesefni

The practice of computing using python 3rd, Höf: William F. Punch and Richard Enbody

Nánari upplýsingar: 
Gunnhildur Grétarsdóttir. 
Verkefnastjóri frumgreinadeildar Háskólans í Reykjavík. Sími 599 6447. 
mailto:haskolagrunnurhr@ru.is 



Var efnið hjálplegt? Nei