Skilmálar
Skema í HR áskilur sér rétt til að rukka fullt námskeiðsgjald ef þátttakandi hættir við þátttöku og tilkynnir ekki forföll á netfangið skema@ru.is eða í síma 5996300 eigi síðar en þremur virkum dögum fyrir upphaf námskeiðs.
Hætti þátttakandi á námskeiði eftir að námskeið er hafið er ekki hægt að krefjast endurgreiðslu.
Leyfilegt er að senda annan þátttakanda í stað þess sem forfallast. Vinsamlegast látið vita um breytingar með eins góðum fyrirvara og unnt er.
Skema í HR áskilur sér rétt til að fella niður eða fresta námskeiðum ef lágmarksþátttöku er ekki náð.
Allar upplýsingar eru trúnaðarmál og verða ekki afhentar þriðja aðila án samþykkis þátttakanda.