Stjórnun og skipulag Háskólans í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík er hlutafélag og eru hluthafar og eignarhluti þeirra eftirfarandi:
- Menntasjóður Viðskiptaráðs Íslands 64%
- Samtök iðnaðarins 24%
- Samtök atvinnulífsins 12%
Eigendur hafa ekki fjárhagslegan ávinning af rekstri HR og ekki heimilt að greiða arð til hluthafa. Í raun er því HR rekinn eins og um sjálfseignarstofnun sé að ræða og ávinningurinn snýst um að efla menntun í landinu, einkum atvinnulífsgreina á sviði tækni, viðskipta og laga.